Leirlistamaður í rokkinu 10. september 2009 04:30 Vinnur með íslenskan leir Greg Barrett segist vinna að mestu með íslensk hráefni í leirlistagerð sinni. fréttablaðið/valli
Hljómsveitirnar DLX ATX, Bárujárn, Me the Slumbering Napoleon og Caterpillarmen leika á skemmtistaðnum Grand Rokk á laugardagskvöldið klukkan 22.00. Hljómsveitin DLX ATX hefur vakið nokkra athygli undanfarið og þykir mjög efnileg. Sveitin leikur háværa en á tímum viðkvæma tónlist sem á rætur í rokkinu. Bassaleikara hljómsveitarinnar, hinum írska Greg Barrett, er þó margt annað til lista lagt því hann vinnur einnig við keramík. „Ég kynntist keramík þegar ég var að vinna við fornleifauppgröft heima á Írlandi þar sem verið var að grafa upp gamlan miðaldakastala nálægt heimili mínu. Í uppgreftrinum fann ég mikið af brotum af leirmunum og heillaðist af þessu eldgamla listformi. Eftir að hafa unnið við þetta í ár fór ég í skóla í Dublin og lærði keramík. Ég hefði svo sem getað endað í einhverju allt öðru, eins og prjónaskap, en mér fannst skemmtilegast að vinna í keramík því ég hef lúmskt gaman af því að bræða hluti," segir Greg Barrett, en hann flutti hingað til lands fyrir fjórum árum ásamt íslenskri kærustu sinni. Greg segist helst vinna með íslenskan leir búinn til úr náttúrulegum hráefnum. „Þegar ég kom hingað fyrst hafði ég heyrt ýmislegt neikvætt um íslenska leirinn. Ég ákvað samt að prófa sjálfur að vinna með hann og safnaði prufum af leir á ferðum mínum um landið og hef þróað mismunandi tegundir af leir til að vinna úr. Hönnunin mín lítur svolítið út eins og hún hafi dottið aftan af ruslabíl miðað við þessa hreinu og látlausu hönnun sem hefur verið svo vinsæl síðustu ár," segir Greg um leirhönnun sína. Vilji fólk kynna sér hönnun Gregs frekar er þeim bent á síðuna www.myspace.com/errrth. - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Andlátið virðist ekki hafa borið að með saknæmum hætti Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira