Garland og Elton John í guðatölu 11. desember 2009 04:30 Elton John hefur verið kjörinn mesta karlkyns átrúnaðargoð allra tíma í nýrri skoðanakönnun.
Tónlistarmaðurinn Elton John og leikkonan Judy Garland hafa verið kjörin mestu átrúnaðargoð allra tíma í nýrri skoðanakönnun sem var gerð á meðal samkynhneigðra. Elton John giftist kærasta sínum til langs tíma, David Furnish, í borgaralegri athöfn fyrir fjórum árum. Söngvarinn hefur notið mikilla vinsælda um árin og kemur valið því kannski lítið á óvart. Á meðal annarra sem komust á karlalistann voru Freddie Mercury, hinn sálugi söngvari Queen, leikarinn Stephen Fry og tónlistarmaðurinnn George Michael. Eini gagnkynhneigði maðurinn á listanum er metrómaðurinn og fótboltatöffarinn David Beckham sem hefur bæði spilað í Bandaríkjunum og á Ítalíu að undanförnu. Valið á Judy Garland, sem lést árið 1969 aðeins 47 ára, kemur heldur ekki á óvart. Þrátt fyrir gagnkynhneigð sína hefur hún lengi verið í guðatölu hjá samkynhneigðum. Spilar þar inn í stuðningur hennar við réttindabaráttu homma í Bandaríkjunum auk þess sem eftirminnileg frammistaða hennar sem Dorothy Gale í söngvamyndinni vinsælu The Wizard of Oz hefur ekki skemmt fyrir. Athygli vekur að dóttir hennar, leik- og söngkonan Lisa Minnelli, kemst einnig á listann. Á kvennalistanum fengu fleiri frægar gagnkynhneigðar söngkonur einnig góða kosningu, þar á meðal Kylie Minogue, Madonna og Cher. Þær eru allar þekktar fyrir djarfa og skrautlega sviðsframkomu og virðist það hafa höfðað vel til þeirra sem tóku þátt í könnuninni. „Það vekur athygli að aðeins einn af körlunum sem komust á topp tíu listann er gagnkynhneigður, David Beckham. Á sama tíma eru flestar konurnar sem urðu fyrir valinu gagnkynhneigðar,“ sagði talsmaður Onepoll, sem framkvæmdi könnunina. Hollywood-stjarnan Marilyn Monroe fær einnig sinn sess á listanum. Hún hefur ávallt notið vinsælda, jafnt hjá gagn- og samkynhneigðum, enda þótti hún kynþokkafull með eindæmum þegar hún var uppi. Þessi voru nefnd á nafn Flestir samkynhneigðir völdu Judy Garland sem mesta átrúnaðargoðið í kvennaflokki. Kylie Minogue komst einnig á þann lista. Elton John er helsta átrúnaðargoðið í karlaflokki ásamt David Beckham. f f
Mest lesið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli Sjá meira