Óskar eftir reynslusögum í bók 10. september 2009 02:30 Skrifar um meðgöngu, fæðingu og getnað Andrea vonast eftir sem flestum reynslusögum fyrir bókina, sem kemur út næsta vor. „
Ég fékk hugmyndina fyrir fjórum árum, þegar ég var ófrísk að eldri stelpunni minni, og er búin að vera með bókina í maganum síðan,“ segir Andrea Björgvinsdóttir. Hún vinnur nú að bók um getnað, meðgöngu og fæðingu sem er áætlað að komi út næsta vor. „Ég komst í samband við Ragnheiði Helgu Reynisdóttur, nýútskrifaða ljósmóður, í gegnum vinkonu mína. Hún mun vinna alla staðreyndavinnuna í bókinni þar sem ég er ekki fagmaður, en ég skrifa svo textann í kringum það. Þetta á að vera tímalaust uppflettirit, en jafnframt skemmtileg og opinská bók sem svalar þorsta þeirra sem eru að verða eða eru ófrískar,“ útskýrir Andrea. Hún er nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem hún stundar söngnám, en hún er nú í fæðingarorlofi eftir að hafa eignast aðra dóttur sína, Eldeyju. „Bókin verður líka uppfull af reynslusögum kvenna og ég vil endilega fá sem mest af sögum frá konum á öllum aldri til að velja úr. Þetta mega líka vera góð ráð eða frásagnir af einhverju fyndnu sem fólk hefur lent í. Þetta þurfa ekki að vera neinar langlokur og ég er opin fyrir öllu. Það ríkir algjör trúnaður og ég hef bara samband við þær konur sem ég vel sögur frá, en þær þurfa ekki að koma fram undir nafni frekar en þær vilja,“ segir Andrea. Aðspurð segir hún að handritið verði tilbúið 1. nóvember og vonast eftir sem flestum reynslusögum á næstu tveimur mánuðum í gegnum andrea.bje@gmail.com. - ag
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Sjá meira