Greiði Skógræktinni 608 milljónir króna 30. október 2009 05:00 Í Kapelluhrauni. Þegar hefur verið skilað inn lóðum sem skipulagðar voru á landi sem Hafnarfjarðarbær tók eignarnámi af Skógrækt ríkisins í Kapelluhrauni. Fréttablaðið/stefán
Matsnefnd eignarnámsbóta hefur úrskurðað að Hafnarfjarðarbær eigi að greiða Skógrækt ríkisins rúmar 608 milljónir króna fyrir 160 þúsund fermetra af landi í Kapelluhrauni. Hafnarfjarðarbær fékk landið í Kapelluhrauni afhent í apríl 2008 og skipulagði þar byggingarlóðir. Ekki náðist samkomulag við Skógrækt ríkisins um kaupverð og kom því til kasta matsnefndar eignarnámsbóta. Skógræktin taldi að miða ætti við úrskurð matsnefndarinnar frá árinu 2005 í máli Kjartans Gunnarssonar og Reykjavíkurborgar. Þá hafi Kjartan á núverandi verðlagi fengið ríflega sex þúsund krónur á hvern fermetra af um 36 þúsund fermetra landi sínu við Norðlingaholt. Skógræktin benti á að fyrri hluta árs 2008 hefði verið mikil eftirspurn eftir byggingarlandi á höfuðborgarsvæðinu og kvaðst telja að greiða ætti minnst einn milljarð og 72 milljónir króna fyrir landið. Þar af væru tæpar 69 milljónir í vexti frá því í apríl 2008. Fyrir sitt leyti krafðist Hafnarfjarðarbær þess að matsnefndin miðaði við stöðuna á fasteignamarkaði eins og hún væri orðin eftir bankahrunið. Umrædd eign væri „í raun óseljanleg á almennum markaði“ og eini raunhæfi kaupandinn að landinu væri bærinn sjálfur. „Það voru allar lóðirnar á þessu svæði farnar og margir að bíða en þeim hefur öllum verið skilað aftur og gatnagerð hætt,“ segir Gísli Valdimarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar, við Fréttablaðið. Matsnefndin segir að í þessu máli eigi matið á landinu að miða við fasteignaverð eins og það var í apríl 2008 „enda hefði landið skipt um hendur á því verði ef samkomulag hefði náðst. Hafnarfjarðarbæ bæri að taka áhættuna af þeirri verðlækkun sem orðið hefur á landi og lóðum síðan“. Varðandi samanburðinn við áðurnefnt land Kjartans Gunnarssonar segir matsnefndin hins vegar að landið í Kapelluhrauni sé verr staðsett og henti ekki eins vel til bygginga og landið í Norðlingaholti. Niðurstaðan varð því sú að Skógræktin fær 3.800 krónur á hvern fermetra eða alls rúmar 608 milljónir eins og fyrr sagði. „Þetta er ekki endanlegt. Við munum nú skoða málið og ákveða hvort bærinn unir niðurstöðunni eða beri hana undir dómstóla,“ segir Anna Jörgensdóttir, bæjarlögmaður í Hafnarfirði. gar@frettabladid.is
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Sjá meira