Tökum á Heaven"s Taxi að ljúka í miðborg Berlínar 14. nóvember 2009 06:00 Helgi Björnsson við tökur á kvikmyndinni Heaven´s Taxi í miðborg Berlínar. Þar leikur hann rannsóknarlögreglumanninn Hans undir leiðsögn leikstjórans Daryush Shokof. Kormákur Geirharðsson skilur þessar sérstöku aðstæður kvikmyndastjörnunnar Helga Björns.
Helgi Björnsson er þessa dagana staddur í Berlín þar sem tökur standa yfir á kvikmyndinni Heaven"s Taxi í leikstjórn Daryush Shokof frá Íran. „Þetta er allt skotið í miðborginni og við vorum í kringum Brandenborgarhliðið á miðvikudaginn. Það er dálítið lýjandi að vera í þessu en það er líka mjög gaman. Þetta eru langir dagar. Maður vaknar sex á morgnana og er að koma heim tíu eða hálfellefu. En þetta er mjög skemmtilegt engu að síður,“ segir Helgi en tökur hófust fyrir rúmri viku og lýkur þeim innan skamms. Í myndinni leikur hann rannsóknarlögreglumanninn Hans sem sérhæfir sig í hryðjuverkamálum. Meðal þeirra sem leika á móti honum er íranska leikkonan Taies Farzan og hinn virti þýski leikari Vadim Glowna. Heaven"s Taxi er nokkurs konar ádeila á írönsk stjórnvöld og frumsýning hennar fyrirhuguð í mars á næsta ári. Leikstjórinn Shokof hefur gert um fimmtán stuttmyndir og myndir í fullri lengd á ferli sínum. Þekktasta mynd hans er Seven Servants frá árinu 1995 sem var síðasta mynd goðsagnarinnar Anthony Quinn. Hún var þó ekki frumsýnd fyrr en fyrr á þessu ári. Myndir sínar hefur hann unnið sjálfstætt án aðkomu stórra kvikmyndavera og eru þær oftast með pólitískum og heimspekilegum undirtóni. Helgi hefur fleiri járn í eldinum því til stendur að hann leiki í nýrri mynd finnska leikstjórans Rennys Harlin, Mannerheim. Enn á þó eftir að ákveða hvenær tökur á henni hefjast. „Það er búinn að vera höfuðverkur að fjármagna hana en mér skilst að það sé að nálgast,“ segir hann. Einnig er hugsanlegt að Helgi leiki í annarri þýskri mynd á næsta ári en það á allt saman eftir að koma betur í ljós. Helgi átti að syngja með hljómsveit sinni Kokteilpinnunum í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld en eftir að tökurnar á Heaven"s Taxi frestuðust varð að aflýsa gigginu. „Því miður þurftum við að fella niður sýninguna út af þessu en um næstu helgi verður allt á sínum stað,“ segir hann hress. Félagi hans Kormákur Geirharðsson úr Kokteilpinnunum er svekktur yfir því að aflýsa þurfti tónleikunum en skilur vel þessar óvenjulegu aðstæður. „Þetta hittir svona slysalega á en menn neita ekki kvikmyndatilboði frá erlendri grund, sérstaklega ekki þegar menn fá borgað í evrum.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira