Mikill áhugi frá útlöndum 26. ágúst 2009 04:00 Anna og kamilla Anna Hildur Hildibrandsdóttir hjá Útón og Kamilla Ingibergsdóttir halda utan um hátíðina You Are In Control. Fréttablaðið/valli
Búist er við því að um þrjátíu innlendir og erlendir aðilar haldi fyrirlestra á tónlistarráðstefnunni You Are In Control sem verður haldin á Hilton-hótelinu í Reykjavík dagana 23. og 24. september. „Það hefur verið mikill áhugi að utan og við höfum verið að selja pakkaferðir frá Norður-Ameríku og Evrópu,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir, verkefnastjóri ráðstefnunnar. „Hérna verður fólk frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Norðurlöndunum líka. Það er mikill áhugi á ráðstefnunni í Svíþjóð og við munum fá helling af fólki þaðan, bæði gesti og fólk sem ætlar að tala.“ Á meðal fyrirlesara verður Alice Schneider sem stjórnar sjónvarpstónlistardeild hjá NBC/Universal í Bandaríkjunum og velur m.a. tónlist í þætti á borð við Heros, Trauma og Caprica. Einnig verður hér bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Cory McAbee sem var valinn á Sundance-kvikmynda-hátíðinni til að búa til eina af fimm stuttmyndum til að dreifa í gegnum farsíma. Á You Are In Control verður rætt um nýjar leiðir í dreifingu á menningar- og afþreyingarefni, aukin tækifæri í markaðssetningu og hlutverk samfélagsvefja. „Í fyrra mynduðust mjög góð viðskiptatengsl. Gogoyoko myndaði góð tengsl við erlenda aðila, Dr. Spock var beðinn um tónlist við bíómynd í Los Angeles og Lay Low komst á samning hjá Nettwerk. Það sprettur upp fullt af hugmyndum á svona hátíð. Það borða allir saman hádegismat og síðan eru sameiginlegir kaffitímar,“ segir Kamilla um aðstöðuna á Hilton-hótelinu. „Við erum að skapa rými til að fólk geti verið að tala saman og þess vegna er þetta allt á einum stað, því flestir ráðstefnugestir munu gista þarna líka.“ Ráðstefnugjald er 36.000 krónur við inngang. Þeir sem skrá sig fyrir 1. september borga 24.000 en Íslendingar sem skrá sig fyrir 1. september fá 50% afslátt og greiða 12.000 krónur. Skráning er á greta@utflutningsrad.is. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira