Sameining til að verja heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni 11. janúar 2009 12:09 Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hvetur menn til að skoða reynsluna af sameiningu heilbrigðisstofnana á Austurlandi og Suðurlandi. Hörð mótmæli berast nú gegn sameiningum annarsstaðar á landsbyggðinni. Hann viðurkennir að margir stjórnendur muni missa vinnuna.Fjölmenni sótti borgarafund á Sauðárkróki fyrir helgi gegn áformum um að heilbrigðisstofnanir á Norðurlandi verði settar undir stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Húnvetningar mótmæla líka og segja vegið harkalega að íbúum svæðisins. Á Vestfjörðum er mótmælt og bent á að á milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða komist enginn nema fuglinn fljúgandi í allt að 8 mánuði á ári vegna erfiðra samgangna og því vonlaust að sameina heilbrigðisstofnanir á Patreksfirði og Ísafirði. Og sunnlenskir sveitarstjórnarmenn efast um vegna landfræðilegrar sérstöðu Vestmannaeyja og Hornafjarðar að ná megi árangri með því að sameina stofnanir þeirra við Selfoss. En hvað segir ráðherrann?Guðlaugur Þór segir að þetta hafi verið viðbúið, umræðan hafi alltaf verið með þessum hætti. Það skipti máli að koma til móts við sjónarmið og hlusta en nú þegar hefðu verið sameinaðar stofnanir á landsbyggðinni, bæði á Austurlandi og Suðurlandi, og hann hvetti fólk til að skoða reynsluna af því.Í ræðu frammi fyrir tvöþúsund manns í Hafnarfirði gær vegna breytinga á Sánkti Jósefsspítala sagði hann að margir stjórnendur misstu vinnuna á landsbyggðinni. Það væri algerlega ljóst að margir þeir aðilar sem stýrðu þessum stofnunum, sem margar væru mjög smáar, misstu sín störf. Það væri miður en það væri gert til að viðhalda störfum hjá heilbrigðisstarfsfólki og þeirri þjónustu sem það veitir. Reynsla væri hins vegar fyrir því að sameiningar sem þessar, þótt þær taki á meðan á því stendur, skili sér í þjónustu og hagræði.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira