Raquela tilnefnd 29. ágúst 2009 03:45 Kvikmyndir Queen Raquela og Ólafur Jóhannesson.
Kvikmyndin The Amazing Truth About Queen Raquela hefur hlotið tilnefningu í ár til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Leikstjóri og handritshöfundur er Ólafur Jóhannesson, meðhöfundur er Stefan Schaefer og framleiðendur eru þeir Ólafur og Stefan ásamt Helga Sverrissyni og Arleen Cuevas. Alls eru fimm myndir tilnefndar, ein frá hverju Norðurlandi, og eru sigurverðlaunin 350.000 danskar krónur (um 8,7 milljónir íslenskra króna), sem skiptast á milli leikstjóra, handritshöfunda og framleiðenda. Sjón og varamaður hans, Sif Gunnarsdóttir, sitja í dómnefndinni: Þau segja í umsögn um myndina: „The Amazing Truth About Queen Raquela er hrífandi og ögrandi kvikmynd sem segir sögu titilpersónunnar, stelpustráks frá Filippseyjum. Á hógværan máta er áhorfandanum boðið inn í veröld Raquelu án fordóma, en þó ekki án þeirrar forvitni sem lífshættir hennar hljóta að vekja. Með því að má út mörk heimildarmyndar og leikinnar myndar hefur leikstjórinn, Ólafur de Fleur Jóhannesson, fundið leið til þess að taka mannlega afstöðu til harðneskjulegs raunveruleika sögupersónunnar um leið og hann nýtur þess að vinna með alla frásagnarmöguleika „góðrar sögu“. Hvort sem Raquela er að selja sig á götunni eða framan við vefmyndavélina til siðlauss fjölskylduföður/klámkóngs í New York, eða sóla sig á ströndinni og versla með vinkonunum, minnir raunsæ og vonglöð afstaða Drottningarinnar til lífsins okkur á, að það er ekki okkar að dæma hvort líf annarra er þess virði að lifa því.“ Þær fjórar myndir sem eru að auki tilnefndar eru: Frá Danmörku, Andkristur (Antichrist), leikstjóri og handritshöfundur Lars von Trier og framleiðandi Meta Louise Foldager (Zentropa). Frá Finnlandi, Sána (Sauna), leikstjóri AJ Annila, handritshöfundur Iiro Küttner, og framleiðendur Tero Kaukomaa og Jesse Fryckman (Solar films). Frá Noregi, Norður (Nord), leikstjóri Rune Denstad Langlo, handritshöfundur Erlend Loe og framleiðandi Sigve Endresen (Motlys). Frá Svíþjóð, Ljósár (Ljusår), leikstjóri og handritshöfundur Mikael Kristersson og framleiðandi Lisbet Gabrielsson (Lisbet Gabrielsson Film AB). Græna ljósið sýnir allar myndirnar fimm 11.-13. september í Háskólabíói og þær verða sýndar í öllum höfuðborgum Norðurlandanna á næstu vikum. Almenningi gefst þar með í fyrsta skipti tækifæri til að sjá allar þær myndir sem hljóta tilnefningu í ár. - pbb
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira