Símaperri áreitir kúnna Adams og Evu 26. ágúst 2009 05:00 Aðdáendur áreittir Óprúttinn aðili hefur stundað að áreita aðdáendur Adam og Evu á Facebook en verslunin selur hjálpartæki fyrir ástarlífið. Þorvaldur Steinþórsson segir málið litið alvarlegum augum og að það verði kært til lögreglu í dag eða á morgun. Milli átta og níu manns hafa lent í umræddum símaperra. „
Trúnaður við viðskiptavini okkar er sterkasta vopnið og því er þetta litið mjög alvarlegum augum. Við erum eiginlega alveg brjáluð yfir þessu,“ segir Þorvaldur Steinþórsson, eigandi hjálpartækjaverslunarinnar Adams og Evu. Einhver óprúttinn hefur að undanförnu nýtt sér aðdáendasíðu verslunarinnar á Facebook, hringt í útvalda og spurt þá óviðurkvæmilegra spurninga sem tengjast áhuga á annaðhvort undirfötum, búningum eða hjálpartækjum ástarlífsins. Að sögn Þorvaldar höfðu þau fyrst spurnir af málinu þegar nokkrir vinir höfðu samband við verslunina og sögðust hafa fengið undarlegt símtal frá einhverjum sem sagðist hringja á vegum Adams og Evu, hann væri að gera símakönnun og vildi fá einhverjar upplýsingar. „Fyrir það fyrsta myndum við náttúrlega aldrei gera símakönnun. Við settum strax fréttatilkynningu á Facebook um að við værum alls ekki að gera símakönnun og höfum fengið upplýsingar um fólk sem hafa sömu sögu að segja. Þetta virðist því vera ansi víðtækt því viðkomandi þarf að hafa aðgang að Facebook-síðunni, leita fólkið uppi á simaskra.is og standa svo í því að hringja,“ segir Þorvaldur, Hann segir þetta flokkast sem kynferðislega áreitni og misnotkun á þeirra vörumerki en málið verði kært til lögreglu í dag eða á morgun. „Við erum að safna saman upplýsingum og ef fólk hefur lent í þessum náunga getur það sent okkur póst á postur@adamogeva.is og þar þarf einungis að koma fram hvenær var hringt og í hvaða síma.“ - fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira