Keppt um Viðeyjarhnossgætið 28. ágúst 2009 03:00 Töðugjöld í Viðey Keppt verður um Viðeyjar-hnossgætið á Töðugjöldum á laugardag og segir Guðlaug keppendur mega búa til hvað sem er, svo lengi sem staðfest sé að eitt innihaldsefni vaxi í Viðey. „
Við vorum með Töðugjöld í fyrsta sinn í fyrra og þessi keppni er partur af þeirri dagskrá núna á laugardaginn," segir Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona og verkefnastjóri Viðeyjar um keppnina um Viðeyjarhnossgætið. Keppnin er ætluð öllum þeim sem hafa áhuga á að búa til góðgæti úr íslenskri flóru og eina skilyrðið er að eitt innihaldsefni vaxi í Viðey. „Með þessari keppni erum við að vekja athygli á ræktuninni í Viðey sem hefur verið þarna fá því fyrir klausturtímann og þeirri gríðarlega miklu flóru sem er í eyjunni. Til dæmis er kúmenið okkar orðið margfrægt, það drepur ekkert rabarbarann og ætihvönn er alltaf að verða vinsælli í matargerð," útskýrir Guðlaug. „Fólk má búa til hvað sem er, svo sem grænmetisrétt, kartöflumús, sultu, te, chutney eða djús. Dómnefndin fer svo eftir útliti, hugmyndaauðgi og að sjálfsögðu hvernig bragðast og það verða vegleg verðlaun í boði," bætir hún við, en dómnefnd skipa Hildur Hákonardóttir, Nanna Rögnvaldar-dóttir og fulltrúi frá Gestgjafanum. Aðspurð segist Guðlaug búast við fjölda manns á hátíðina, „Það komu í kringum 300 manns í fyrra og við reiknum með öðru eins núna. Þetta er haustfagnaður og uppskeruhátíð með skemmtun fyrir börnin, bænastund í kirkjunni og þessari keppni. Hátíðin stendur svo fram á kvöld, en þá verður varðeldur í fjörunni og slegið upp balli í skólanum," segir hún, en áhugasamir geta skráð sig í keppnina á videy@reykjavik.is eða á staðnum fyrir klukkan 16. -ag
Mest lesið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Lífið Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Lífið Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Lífið Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Lífið Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Lífið Kjalar ástfanginn í tvö ár Lífið Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Bíó og sjónvarp Óttar keypti 320 milljóna króna þakíbúð Lífið Enginn til ama á hátíðinni Tíska og hönnun Alda Karen keppir í hermiakstri Lífið Fleiri fréttir Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Alda Karen keppir í hermiakstri Var ekki að lifa lífinu heldur að þrauka það Eilish sópaði að sér verðlaunum á AMA-hátíðinni Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Brauðtertu- og ostakökukeppni á Selfossi Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti Senjórítur og Pálmi Gunnars stálu senunni á Rottweiler Eyjaherrar heiðruðu sjötugan Ásgeir í stjörnufans „Þessi þriggja daga hátíð er algjört konfekt” Þarf ekki stóra íbúð til að gera heimilið fallegt Ásta Kristrún og Valgeir biðla til vina í leit að húsnæði Óttar keypti 320 milljóna króna þakíbúð Segist hafa neyðst til að vera Laufey í beinni útsendingu Stjörnulífið: Fröllur í poka og franska rívíeran Ástir, losti, fíkn og svik – dauði Marilyn Monroe Flytur til Sydney Drake kom fram á tónleikum í 66°Norður Reisa styttu af Birni í Kópavogi Lauk krefjandi háskólanámi og barðist við lífshættuleg veikindi á sama tíma Krakkatían: Mona Lisa, VÆB og Þjóðhátíð Segja Freddie Mercury eiga laundóttur Dráttarvéladagur er á Blikastöðum í dag Skotin flakka milli Enoks og Birgittu: „Settu franskarnar í pokann“ Sinnir sjúklingum í sama herbergi og hún fékk greiningu Sjá meira