Uppboðum Íbúðalánasjóðs hefur fjölgað verulega 15. febrúar 2009 19:30
Miklu fleiri heimili eru illa stödd fjárhagslega nú en fyrir nokkrum mánuðum. Uppboðum hjá Íbúðalánasjóði hefur fjölgað verulega. Þetta kom fram hjá Svanhildi Guðmundsdóttur, sviðsstjóra hjá Íbúðalánasjóði, á borgarafundi sem fram fór á Akureyri á fimmtudagskvöld. Svanhildur var í hópi þeirra sem fluttu erindi um vaxandi vanda heimilanna og sagði aðspurð að uppboðum að kröfu Íbúðalánasjóðs hefði fjölgað umtalsvert að undanförnu. Reynt væri þó að sjá til þess að fólkið missti ekki þakið yfir höfuðið. Það væri ekki borið út þessa dagana. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, vill að Íbúðalánasjóður eða ríkið yfirtaki öll húsnæðislán almennings og færi þau niður. Skiptar skoðanir voru á fundinum um hvort þetta sé raunhæf hugmynd og hvernig hún skuli framkvæmd. Ljóst er að verulegur hluti íbúðalána mun hvort eð er glatast, segir talsmaður neytenda. Gísli telur að svokallaður forsendubrestur hafi orðið þegar gengi krónunnar hrundi og þess vegna sé ekki hægt að fara fram á að íbúar greiði lán sem hafi ef til vill hækkað um 50% eða meira. Kári Arnór Kárason, hjá Lífeyrissjóðnum Stapa, varaði við því að hagsmunaaðilar skiptu sér í fylkingar þar sem einn talaði gegn öðrum heldur yrði að vinna sameiginlega að lausn hins gríðarlega vanda sem við blasir hjá mörgum húsnæðiseigendum. Þá kom fram að óásættanlegt sé að harðar sé sótt að heimilum á íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Fasteignasali sagði að það ljós væri í myrkrinu nú að tækifæri væru til kaupa fyrir þá sem ættu ekkert reiðufé.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Sjá meira