Framsóknarboð Óskars á sér nokkur fordæmi 5. mars 2009 15:25 Óskar Bergsson, formaður borgarráðs og borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Umdeilt boð sem Óskar Bergsson, formaður borgarráðs, hélt fyrir flokkssystkini sín í nóvember á seinasta ári á sér fordæmi. Undanfarin ár hafa borgarfulltrúar annarra flokka staðið fyrir samskonar móttökum á kostnað borgarstjórnar. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, krafðist þess fyrir skömmu að Óskar segði af sér vegna þess sem að hann kallaði misnotkun á móttökustarfsemi. Vísaði Ólafur til þess að Óskar stóð fyrir mótttöku í Ráðhúsinu þann 14. nóvember síðastliðin fyrir 30 sveitastjórnarfulltrúa Framsóknarflokksins. Í framhaldinu frábað Óskar sér síendurtekin upphlaup Ólafs og sagði að hann hefði ekki brotið neinar reglur.Árni, Steinunn, Stefán Jón og Vilhjálmur héldu boð fyrir flokksfélaga Skrifstofa borgarstjóra tók nýverið saman lista yfir þær móttökur sem haldnar voru á vegum borgarstjórnar Reykjavíkur frá 1. janúar 2004 og fram til 15. febrúar 2009. Í samantekinni kemur fram að 30 ungir sjálfstæðismenn heimsóttu Ráðhúsið í september 2004. Árni Þór Sigurðsson, þáverandi forseti borgarstjórnar, var skráður fyrir boðinu. Skömmu síðar, eða í október, hélt Árni móttöku fyrir 40 félaga sína í Vinstri grænum. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þáverandi borgarstjóri, stóð fyrir boði í janúar 2005 fyrir 30 Samfylkingarkonur í Ráðhúsinu. Í maí sama hér hélt flokksbróður Steinunnar Stefán Jón Hafstein móttöku fyrir 40 flokksmenn í Samfylkingunni. Þá hélt Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þáverandi borgarstjóri, móttöku á kostnað borgarstjórnar fyrir 25 manns í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins í febrúar 2007.
Tengdar fréttir Móttökur hjá borginni fjórða hvern dag Móttökur á vegum borgarstjórnar Reykjavíkurborgar hafa verið haldnar að meðaltali fjórða hvern dag undanfarin ár. Með móttökum er átt við öll mannamót sem haldin hafa verið á kostnað borgarstjórnar hvort sem um er að ræða móttökur með vínveitingum eða öðrum veitingum. 5. mars 2009 13:12 Mest lesið Rabbíni drepinn í árásinni Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Innlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Innlent Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Fleiri fréttir Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Sjá meira
Móttökur hjá borginni fjórða hvern dag Móttökur á vegum borgarstjórnar Reykjavíkurborgar hafa verið haldnar að meðaltali fjórða hvern dag undanfarin ár. Með móttökum er átt við öll mannamót sem haldin hafa verið á kostnað borgarstjórnar hvort sem um er að ræða móttökur með vínveitingum eða öðrum veitingum. 5. mars 2009 13:12