Reynslan kennir að uppboðsleið er ófær 2. maí 2009 03:00 Útgerðarmenn telja að uppboð aflaheimilda í kjölfar fyrningar aflaheimilda skuli skoðast með hliðsjón af reynslu annarra atvinnugreina af þeirri leið.fréttablaðið/hari
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, telur að hafa megi reynslu byggingaverktaka á árunum 1999 til 2002 til hliðsjónar í umræðunni um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og uppboði á aflaheimildum í kjölfar innköllunar þeirra. Í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum Samfylkingar og Vinstri grænna er svokölluð fyrningarleið á dagskrá, eða að fimm prósent veiðiréttar verði innkölluð og verði endurúthlutað. Lengi hefur verið horft til uppboðsleiðarinnar og tekist á um hvort hún sé til bóta eður ei. Heimildir Fréttablaðsins herma að fyrningarleiðin hafi ekki komið til umræðu enn sem komið er í umræðum flokkana, en margir stjórnarliðar telji að ekki sé hægt að setja aflaheimildir á frjálsan markað skilyrðislaust. Útfærslan sé eftir og samráð verði haft við greinina við þá vinnu. Friðrik segir að reynsla verktakanna sé samanburðarhæf við þær hugmyndir sem nú eru uppi um breytingar á fiskveiðistefnunni. Þriðjungur verktaka fór í þrot eftir að hafa keypt lóðir háu verði vegna ótta við verkefnaleysi. „Þetta er bara mun verra hvað varðar sjávarútveginn vegna þess að upptaka og uppboð aflaheimilda leiðir til þess að langtímasjónarmiðum um ábyrga umgengni við auðlindina er fórnað. Það hefur sýnt sig að þeir sem ekki eiga trygga aflahlutdeild sýna auðlindinni ekki sömu virðingu og þeir sem hafa fjárfest í aflahlutdeild. Þetta er eini munurinn og að öðru leyti algjörlega samanburðarhæft.“ Þorsteinn Víglundsson, varaformaður Samtaka iðnaðarins, vakti athygli á þeim vanda sem kom upp í byggingariðnaðinum eftir að útboðsleiðin var reynd fyrir áratug. „Það er enginn vafi í mínum huga að það er hægt að draga samlíkingu þarna á milli“, segir Þorsteinn. „Þegar uppboðsmarkaður er settur á fót þar sem kaupandinn er settur í þá aðstöðu að fá allt eða ekkert, en þannig var þetta í lóðauppboðum þar sem þeir fengu sem voru nógu kaldir að bjóða, þá skaparðu hættu á því að verðlagning verði óraunhæf. Ef þú býrð til skort þá hækkarðu verð.“ Þorsteinn segir spurninguna liggja í því hvort tilgangurinn sé að hækka verð eða innheimta sanngjarnt endurgjald. „Það getur varla verið markmiðið að sprengja upp verðið á aflaheimildunum, heldur að greinin sjálf sé arðbær, borgi skatta og skapi störf. Hættan er sú að ríkið tekur til sín meginþorrann af væntanlegum arði af veiðunum.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Sjá meira