Blendin viðbrögð við hugmynd talsmanns neytenda Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 1. maí 2009 12:50
Hagmunasamtök heimilanna og Húseigendafélagið skora á stjórnvöld að veita tillögu talsmanns neytenda um að færa niður skuldir með gerðardómi brautargengi. Tillagan fær þó blendin viðbrögð, Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi viðskiptaráðherra, segir þetta leiðina til að velta öllum íbúðalánavandanum beinustu leið á herðar skattborgara. Rétt eins og fyrri tillögur manna og flokka um niðurfærslu skulda sem komið hafa fram á undanförnum mánuðum með mismunandi útfærslum hefur ítarleg tillaga talsmanns neytenda um að fasteignaveðlán verði tekin eignarnámi og lánin færð niður samkvæmt mati lögbundins gerðardóms - ýmist verið hyllt eða fallið í grýttan svörð. Hagmunasamtök heimilanna og Húseigendafélagið sendu í dag frá sér stuðningsyfirlýsingu við tillöguna og lýsa þar yfir eindregnum stuðningi við hana. Í yfirlýsingunni segir að tillagan sé vönduð og ítarlega rökstudd og í alla staði virðingarvert framtak. Félögin taka heilshugar undir þau sjónarmið og rök sem talsmaðurinn reifar. Í ljósi þeirrar neyðar sem orðin sé og verði alvarlegri með hverjum deginum, skora félögin á stjórnvöld að slá með tillögunni marglofaðri skjaldborg um fjölskyldur og heimilin í landinu. Brýnt sé að bregðast skjótt við. Engan tíma megi missa. Það er heldur annar tónn í grein sem Sighvatur Björgvinsson fyrrverandi viðskiptaráðherra skrifar í Fréttablaðið í dag þar sem hann slær hugmyndir talsmanns neytenda út af borðinu. Hann segir talsverðar leifar af viðskiptasnilld enn finnast á Íslandi þrátt fyrir hrunið, því síðustu vikur hafi skotið upp kollinum í fjölmiðlum snöfurmenni sem upplýsi að auðvelt sé að losa fólk undan skuldum án þess að það kosti nokkurn nokkuð. Nýjasta dæmið sé talsmaður neytenda. Sighvatur segir það ófrávíkjanlega meginreglu eignarnáms að fullar bætur komi ávallt fyrir. Ríkið yrði því að greiða kröfueigendum fullar bætur fyrir eignaupptökuna. Sighvatur segir að sérhver snuddgreindur maður sjái það á augabragði að þetta sé leiðin til þess að velta öllum íbúðalánavanda banka, sparisjóða, lífeyrissjóða og Íbúðalánasjóðs beinustu leið á herðar skattborgara. Öll vandamál þessara lánveitenda yrðu leyst. Ríkið fengi reikninginn.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira