Börn fá gefins endurskinsvesti 5. nóvember 2009 05:00 skrítinn karl Borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs, tróð sér í endurskinsvesti í barnastærð í tilefni dagsins. Nemendur í Melaskóla vissu vart hvaðan á þau stóð veðrið.Fréttablaðið / Stefán
Í vikunni mun öllum grunnskólabörnum í fyrsta til þriðja bekk í Reykjavík verða færð endurskinsvesti að gjöf frá borginni. Um er að ræða stærsta umferðaröryggisátak sem ráðist hefur verið í í þágu skólabarna í borginni, að því er segir í tilkynningu. Börnum í Melaskóla voru afhent vestin með hjálp lögreglunnar með viðhöfn í gærmorgun. Þau klæddu sig í vestin og prófuðu þau síðan með því að ganga yfir götu í fylgd lögreglu. Tilgangur átaksins er að auka notkun endurskinsvesta og endurskinsmerkja meðal ungra barna, og eru þau hvött til að nota vestin á leið til og frá skóla og við önnur tækifæri svo þau sjáist betur í skammdeginu. Segir í tilkynningu að hægt sé að auka öryggi í umferðinni margfalt með því að nota endurskinsvesti og -merki. Börn með endurskinsmerki sjáist fimm sinnum fyrr en ella. Gjöfin er liður í umferðaröryggisátaki sem menntaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á hundraðasta fundi sínum fyrir skemmstu. Í tengslum við það verður fræðsla um umferðaröryggi efld og leitast við að sá þáttur verði meira áberandi í skólastarfi en verið hefur. Borgin ræðst í átakið í samvinnu við lögregluna, Umferðarstofu og SAMFOK. - sh
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira