Fabregas frábær í stórsigri Arsenal á Blackburn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2009 14:01 Cesc Fabregas fagnar marki sínu í leiknum í dag. Mynd/AFP
Cesc Fabregas, spænski miðjumaðurinn hjá Arsenal, sýndi snilli sína í 6-2 sigri Arsenal á Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fabregas átti þátt í fyrstu fimm mörkum Arsenal, skoraði eitt og átti fjórar stoðsendingar. Blackburn komst tvisvar yfir í frábærum fyrri hálfleik, fyrst með skallamarki Steven Nzonzi á 4. mínútu eftir langa aukaspyrnu Paul Robinson markvarðar og svo með marki David Dunn eftir skyndisókn á 31. mínútu. Miðvörðurinn og markaskorarinn Thomas Vermaelen jafnaði leikinn í 1-1 á 17 mínútu og Robin van Persie jafnaði í 2-2 á 33. mínútu. Það var síðan Andrey Arshavin sem Arsenal yfir átta mínútum fyrir hálfleik eftir sendingu frá Cesc Fabregas sem lagði upp öll þrjú mörk liðsins í hálfleiknum. Cesc Fabregas skora síðan sjálfur fjórða mark Arsenal á 57. mínútu með þrumuskoti fyrir utan teig eftir sókn þar sem hann reyndi tvisvar að spila félaga sína fría. Fabregas var reyndar ekki hættur því hann átti fjórðu stoðsendingu sína í leiknum þegar hann spilaði Theo Walcott frían sem þakkaði pent fyrir sig og skoraði fimmta mark Arsenal á 75. mínútu. Fabregas var síðan skipt útaf strax eftir markið. Það var síðan Daninn Nicklas Bendtner sem innsiglaði sigur Arsenal með frábæru skoti fyrir utan teig á 89. mínútu en hann var að spila sinn fyrsta leik eftri að hafa klessukeyrt bílinn sinn á dögunum.
Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira