Borgin hagræðir með bakstri og hafragraut 13. mars 2009 04:15 Hanna Birna og sigrún elsa Hanna Birna Kristjánsdóttir segir að litið hafi verið til allra þátta til að ná fram hagræðingu hjá borginni; allt frá hafragraut til viðhaldsframkvæmda. Sigrún Elsa Smáradóttir er ekki sátt.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri segir borginni takast að hagræða um 2,3 milljarða á þessu ári án þess að skerða grunnþjónustu, fækka starfsfólki eða hækka gjaldskrár. Samkvæmt tillögum um endurskoðun fjárhagsáætlunar, sem lögð var fram á borgarráðsfundi í gær, verða sparnaðartillögur borgarstarfsmanna nýttar til að ná fram um helming þessarar hagræðingar. Meðal tillagna sem um ræðir er að nota handklæði í leikskólum í stað pappírsþurrkna og bjóða oftar upp á hafragraut í stað morgunkorns svo dæmi séu tekin. Einnig verður gerð breyting á svokallaðri viðbótarstund barna í 2. til 4. bekk en hún er áður en eiginleg kennsla hefst á morgnana. Sú breyting hefur enn ekki verið útfærð nákvæmlega. Ákveðið var við fjárhagsáætlun í janúar að fara í viðbótarhagræðingu sem næmi 2,3 milljörðum. 1,3 milljarða hagræðingu á að ná fram með því að minnka yfirvinnu eins og þegar hefur verið kynnt. Gert var grein fyrir milljarðinum sem upp á vantaði í gær. „Við ákváðum að leita til starfsfólks okkar sem er næst íbúum borgarinnar og þekkir þarfir þess og spyrja hvernig við náum þessum markmiðum okkar um hagræðingu án þess að skerða grunnþjónustu, hækka gjaldskrár eða segja upp starfsfólki,“ segir Hanna Birna. Um 1.500 hugmyndir bárust og verða um 300 þeirra nýttar nú strax. „Alls tóku 3.000 starfsmenn þátt í vinnunni og verður henni framhaldið meðal annars þannig að þeir geti fylgst með framgangi eigin tillagna.“ Meðal annarra leiða sem beita skal eru að draga úr sérfræðiþjónustu, draga úr kostnaði við aðkeypta þjónustu, reyna að ná hagstæðari samningum við birgja með því að samnýta innkaup margra sviða og stofnana og draga úr viðhaldsframkvæmdum. Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem einnig á sæti í framkvæmda- og eignarráði, er ekki alls kostar sátt. „Þetta er ekki í miklu samræmi við það sem rætt hefur verið um til þessa,“ segir hún. „Ég bíð reyndar eftir frekari upplýsingum um það hvernig þessu verður háttað en ég get nú þegar sagt að mér líst illa á það að miklu af niðurskurðinum á að fást með því að skera niður mannaflsfrekar viðhaldsframkvæmdir sem skýtur skökku við þar sem meirihlutinn hefur talað fyrir því að efla atvinnustigið.“ jse@frettabladid.is
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira