Íslenskir þýðendur hunsa Lars von Trier 21. september 2009 05:00 Þýðendur sögðu nei við Antichrist og vildu ekki texta hana fyrir almennar sýningar. Hún verður frumsýnd 28.september. Ísleifur B. Þórhallsson segir þetta aðeins í annað sinn sem hann lendi í svona. „
Við höfum aðeins einu sinni lent í þessu áður, það var fyrir kvikmyndina Zoo þar sem maður hefur mök við hest og deyr," segir Ísleifur B. Þórhallsson hjá Græna ljósinu. Þýðendur neita að texta kvikmyndina Anti Christ eftir Lars von Trier. „Við leituðum til fjögurra og þeir sögðu allir nei. Þá nenntum við þessu ekki lengur. Þeir Höfðu lesið sitthvað um viðbrögðin við myndinni eftir frumsýningar í Cannes og Toronto og svo auðvitað hér heima," útskýrir Ísleifur og vísar þar til fréttar Fréttablaðsins af þeim Jóni Baldvini og Bryndísi Schram. Jón Baldvin gekk út af myndinni, honum var svo ofboðið en Bryndís tórði hins vegar inní bíósalnum alveg þangað til hún kláraðist. Hún viðurkenndi í samtali við Fréttablaðið að hún hefði þurft að fá sér smá brennivínsstaup til að ná sér niður. Ísleifur segir allar myndir vera þýddar eftir handriti. Hins vegar þurfi þýðandinn að hafa myndina fyrir augum sér, horfa á hana nokkrum sinnum svo að textinn komi örugglega á réttum stað. „Og þeir voru ekkert sérstaklega tilbúnir til þess, að horfa á hana oft og mörgum sinnum," segir Ísleifur sem reiknaði með að hann myndi örugglega bara sjálfur texta myndina fyrir DVD-útgáfuna. - fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Sjá meira