Hellisbúi í lukkunærbuxum 1. september 2009 08:30 Jóhannes treystir á að gæfa nærbuxnanna úr Fló á skinni virki í Hellisbúanum.Fréttablaðið/gva „
Ég er með lukkunærbuxur,“ viðurkennir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari. „Það byrjaði á Akureyri, þegar ég var að leika í Fló á skinni þar, en þá fékk ég svona Joe Boxer-nærbuxur með hjörtum á. Ég þurfti að vera í þeim í þeirri sýningu, því þær sáust, og var alltaf í þeim. Fló á skinni endaði í 144 sýningum. Það gekk vel, þannig að ég ákvað bara að slá til og vera í þeim líka í Hellisbúanum.“ Nærbuxurnar eru þó þvegnar á milli sýninga. „Þetta getur verið mikil vinna. Ég þarf að sirka það þannig út að þær fari í taukörfuna og verði tilbúnar á sýningardegi. Það er heilmikil athöfn í kringum þetta. Ég er náttúrlega bara rétt nýbyrjaður að forsýna Hellisbúann, þannig að ég á eftir að athuga hvort það gangi ekki að vera alltaf í þeim, en það er stefnan. Ég ætla að sjá hvort ég get ekki gert hefð úr þessu.“ Lukkufatnaður tíðkast í fótboltanum og öðru sporti. „Maður hefur heyrt að íþróttamenn séu með eitthvað svona. Mér finnst ég alveg jafn töff og hver íþróttamaður. Maður verður að hafa eitthvað svona.“ Jóhannes er ekki lengur á samningi við Borgarleikhúsið, en hann var þar seinasta vetur. „Ég var á árssamningi en er núna að fara í Hellisbúann og verð í Þjóðleikhúsinu líka, í Gerplu hjá Baltasar. Hver veit nema maður snúi svo aftur í Borgarleikhúsið. Leikarar eru oft að flakka svona á milli húsanna.“ Hellisbúinn er frumsýndur á fimmtudaginn. Finnur Jóhannes fyrir spennu? „Já, það er ekki laust við það. Ég hef nokkuð góða tilfinningu fyrir þessu, við höfum verið með forsýningar fyrir fullum sal og það hefur gengið æðislega, þannig að ég hef enga ástæðu til að ætla annað, svo lengi sem ég næ að tolla í nærbuxunum.“-kbs
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira