Katla gæti vaknað 18. júlí 2009 18:44
Kvikuhreyfingar sem hafnar eru undir Eyjafjallajökli gætu endað með eldgosi í fjallinu og vakið Kötlu. Þetta segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur og bendir á að talið sé að lítið eldgos hafi orðið í Kötlu fyrir tíu árum í framhaldi af kvikuinnskoti í Eyjafjallajökli.Jarðskjálftavirkni sem staðið hefur undir Eyjafjallajökli frá því í júníbyrjun er skýrð með því að þar sé glóandi kvika á hreyfingu. Hræringarnar nú er taldar minna á tvo atburði í jöklinum á síðasta áratug, árin 1994 og 1999. Þeir enduðu sem kvikuinnskot án þess að eldgos yrði. Páll Einarsson segir þó alls ekki hægt að útiloka að núna geti þetta endað sem eldgos þótt líklegra sé að þetta verði samskonar innskot og þá.Páll segir greinilegt að Eyjafjallajökull og Katla séu tengd. Þessi systkin sitji hlið við hlið og hafi áhrif hvort á annað, þótt Katla sé miklu hættulegri. Sagan sýni að atburðir í Eyjafjallajökli geti ræst Kötlu, eins og gerðist árið 1999. Kvikuinnskoti í Eyjafjallajökli hafi þá, að því er virðist, einnig fylgt smágos í Kötlu í júlímánuði 1999. Þá hafi líklega orðið lítið gos undir jöklinum sem ekki náði upp á yfirborð en leiddi til hlaups í Jökulsá á Sólheimasandi sem nærri tók af brúna.
Mest lesið Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira