Fimm þingmenn VG ætla að vera á móti 11. maí 2009 06:00
Fimm landsbyggðarþingmenn VG lýstu því yfir á þingflokksfundi á laugardag að þeir muni greiða atkvæði gegn þingsályktunartillögu um aðildarumsókn við Evrópusambandið. Þetta voru þau Jón Bjarnason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason og Þuríður Backman. „Við settum þennan fyrirvara þannig að öllum væri ljóst að ekki væri hægt að ganga að þingflokki VG sem vísum," segir Þuríður Backman. Þeir þingmenn sem blaðið ræddi við í gær gera þó lítið úr því að myndað hafi verið sérstakt bandalag innan þingflokksins gegn ESB, og kannast ekki við að hinir níu þingmenn flokksins séu hlynntir aðildarumsókninni. Í gær var formlega mynduð fyrsta vinstristjórn Íslands. Hún hefur á stefnuskrá sinni að skapa norrænt velferðarsamfélag. Að leggja þingsályktunartillögu fyrir Alþingi um aðildarumsókn að Evrópusambandi. Að fiskveiðiheimildir verði innkallaðar í áföngum og þeim úthlutað að nýju. Meginverkefni stjórnar Samfylkingar og VG á sviði efnahagsmála verði að ná aftur jafnvægi í rekstri ríkissjóðs, endurreisa fjármálakerfið, ná þjóðarsátt um efnahagsráðstafanir og vinna traust umheimsins á ný. Í yfirlýsingu segir að efnahagsástandið kunni að versna áður en það batnar. Forystumenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands eru ánægðir með fyrirhugað samráð ríkisstjórnar við þá. Forseti ASÍ segist ekki sjá betur en að stjórnin svari kalli vinnumarkaðarins. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, er ósáttur við fyrirhugaðar innkallanir. Nú verði að sannfæra fólk um hversu skaðvænlegar þær séu. „Það væri betra hjá þeim að þjóðnýta fyrirtækin strax," segir hann. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, telur þetta eina dapurlegustu stjórnarmyndun lýðveldisins. Stjórnin ætli að láta stjórnarandstöðu skera úr um Evrópumál. Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingar segir hins vegar að þingleiðin til Evrópu sé skásta lausnin. Varaformaður Sjálfstæðisflokks, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, segir að stjórnarflokkarnir hafi ekki unnið úr Evrópumálunum. Þeir ætli að ríkisvæða sjávarútveginn.
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Erlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Fleiri fréttir Áratuga fjársvelti námsgagna bitni á skólastarfi á öllum stigum Lokanir í Hvalfjarðargöngum um hvítasunnu „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að klára árið 2026“ Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Vætusamt veður fram á mánudag Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Sjá meira