Innlent

Bílvelta á Norðurlandsvegi

Bílvelta varð á Norðurlandsvegi á móts við bæinn Höskuldsstaði í Akrahreppi um klukkan hálfníu í kvöld. Ökumaður og tvö ung börn sem voru í bifreiðinni sluppu með minniháttar skrámur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Bifreiðin er gjörónýt eftir veltuna. Ökumaður var með öryggisbelti spennt og börnin voru í barnabílstólum í samræmi við aldur sinn. Er það mat lögreglunnar á Sauðárkróki að mun verr hefði farið ef öryggisbelti eða réttur öryggisbúnaður fyrir börn hefði ekki verið notaður.

Af þessu tilefni vill lögregla brýna það fyrir fólki að nota öryggisbelti og nota réttan öryggisbúnað fyrir börn í samræmi við aldur þeirra og þyngd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×