Innlent

Vill aðstoð Íslendinga við að móta sjávarútvegsstefnu ESB

Æðsti yfirmaður sjávarútsvegmála Evrópusambandsins lýsir sérstaklega eftir aðstoð frá Íslendingum við mótun nýrrar sjávarútvegsstefnu sambandsins.

Þetta kemur fram í grein í Fréttablaðinu í dag eftir Möltubúann Joe Borg en hann stýrir sjávarútvegsmálum í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Hann segir að fara verði í gagngera endurskoðun á sjávarútvegsstefnu sambandsins. Fiskifloti þess sé ofurstór og ofveiði hafi tíðkast. Einfalda verði regluverk sjávarútvegsstefnunnar og taka verði ákvarðanir nær þeim sem þær snerta.

Joe Borg lýsir eftir opinni umræðu um sjávarútvegsstefnuna og segir framkvæmdastjórn ESB taka á móti tillögum og sjónarmiðum um hvernig best sé að móta atvinnugreinina til framtíðar. Kveðst hann lýsa sérstaklega eftir aðstoð frá Íslandi, einkum og sér í lagi vegna reynslu og þekkingar Íslendinga í þessum málaflokki.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×