Tveir er hin fullkomna tala 23. desember 2009 06:00 Hank & Tank & Lundar Þorgeir er Tank en Henrik er Hank.Mynd/Pétur Eyvindsson
Út eru komnar tvær plötur sem eiga það sameiginlegt að Henrik Björnsson í Singapore Sling er á þeim báðum. Þetta er platan Songs for the birds með dúettinum Hank & Tank (Henrik og Þorgeir Guðmundsson) og samnefnd plata með dúettinum The Go-Go Darkness (Henrik og Elsa María Blöndal). Öll þrjú hittu Dr. Gunna. „Það var annaðhvort að koma þessu út fyrir Airwaves eða jólin og við ákváðum að kýla á jólin,“ segir Henrik. „Hank og Tank-platan er búin að taka sex ár í vinnslu og markmiðið var bara að koma henni út,“ segir Þorgeir. „Við byrjuðum árið 2004 að taka plötuna upp með Barða Jóhannssyni og svo höfum við verið að sauma við hana af og til síðan.“ „Já og bíða eftir þessari Þorláksmessu!“ segir Henrik.Eftirvænting og eftirsjáThe Go-go darkness Elsa María og Henrik.mynd/ramses granadosPlata Hank og Tank er þrungin karlmannlegri spennu og Þorgeir segir hana innihalda báðar tegundir tónlistar, Country og Western. Lee Hazlewood eru nokkuð áberandi áhrifavaldur og platan er ekkert falsettuvæl, enda Þorgeir einn kraftmesti strigabassi landsins. Þorgeir segir plötuna vera góða til áhlustunar bæði fyrir og eftir skrall. „Rokkið er eftirvæntingin eftir kvöldinu, en kántríið er eftirsjáin daginn eftir. Mér finnst þessi plata virka á hvort tveggja, en líklega er þó meiri eftirsjá en eftirvænting.“ „Ekki það að þetta sé kántrí samt,“ segir Henrik. Hann segir að hljómsveitina Singapore Sling alls ekki hætta, hann sé bara að gera annað núna. Stefnt er á að kynna plöturnar á tónleikum, en Go-Go Darkness hefur aldrei spilað og Hank & Tank bara einu sinni á Íslandi, á Sirkus. „Eftir það fórum við reyndar á túr um Frakkland með Keren Ann og spiluðum meðal annars á Olympia í París. Það þykir nú flott,“ segir Þorgeir. Ekkert djókSumarið 2008 var Henrik búinn að fá leið á hinum hefðbundnu rokk-hljóðfærum (gítar, bassa, trommum) og vildi prófa að gera tónlist með einungis orgeli, trommuheila og söngrödd Elsu. Þannig varð The Go-Go Darkness til. Smám saman bættist þó aðeins við hljóðfæragalleríið. „Við vorum bara eitthvað að leika okkur og þetta vatt upp á sig,“ segir Henrik. „Við vildum bara hafa þetta voðalega beisik og ekkert flókið,“ segir Elsa, sem hefur lítið sungið áður, en þó bakraddir með Singapore Sling. Hún er litla systir Möggu Stínu og Sölva Blöndal svo það kemur kannski ekki á óvart að hún syngi líka. „Já, af hverju ekki að prófa þetta? Þessi plata er þó ekkert djók. Heldurðu að við séum eitthvað að djóka hérna?“ Henrik, Þorgeir og Elsa segja böndin tvö alveg aðskilin og enginn möguleiki á samsteypunni Go-go-hank og tank. „Nei, tveir er hin fullkomna tala. Þrír gengur ekki upp,“ segir Henrik. „Tveir eru rokk og ról, þrír eru djass.“ „Og þríhjól eru náttúrlega afleit!“ segir Þorgeir. Listamennirnir gefa plöturnar út sjálfir en 12 tónar dreifa í betri verslanir landans.
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Britney farin í meðferð Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira