Söngleikur með lögum Magga Eiríks 23. desember 2009 05:00 Magnús Geir Þórðarson Söngleikur með lögum Magnúsar Eiríkssonar er í bígerð. fréttablaðið/gva „
Hann er náttúrlega einn allra besti lagahöfundur landsins,“ segir Magnús Geir Þórðarson borgarleikhússtjóri, sem staðfestir að í undirbúningi sé söngleikur með lögum Magnúsar Eiríkssonar. „Það eru flottar sögur í mörgum lögunum hans og við teljum að það sé þarna efni í virkilega flotta sýningu. Hér er verið að velta upp ýmsum hugmyndum um hvernig er hægt að nálgast þetta á sviði. Svo sjáum við til hvað verður úr því.“ Maggi Eiríks er þegar búinn að undirrita viljayfirlýsingu um að söngleikurinn verði gerður og að sögn Magnúsar Geirs er stefnt á að setja hann á fjalirnar á næsta ári ef allt gengur að óskum. Maggi Eiríks segir að það sé ekki ný hugmynd að gera söngleik eftir lögunum hans. Það hafi þegar verið gert hjá áhugamannaleikhúsi í Borgarfirði með góðum árangri fyrir rúmum áratug síðan. „Þar voru músíkin og textarnir notaðir sem beinagrind í sögu. Þetta var flutt í Borgarfirði og víðar við góðar undirtektir,“ segir Maggi. Hann útskýrir að Jóhann Sigurðarson leikari hafi einnig viljað gera söngleik úr lögum hans og núna hafi Borgarleikhúsið tekið hugmyndina upp á nýjan leik. Spilar þar væntanlega inn í gott gengi ævisögu hans sem kom út fyrir jólin. „Magnús Geir hringdi í mig í haust og vildi skrifa undir viljayfirlýsingu. Boltinn er hjá honum.“ Maggi viðurkennir að það gæti verið mjög gaman að sjá söngleikinn í Borgarleikhúsinu, sérstaklega ef einhver vel valinn aðili myndi annast leikgerðina. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur hinn þrautreyndi Ólafur Haukur Símonarson verið nefndur í þessu samhengi en það hefur ekki fengist staðfest. - fb
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Britney farin í meðferð Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira