Óskarskapphlaupið hafið 1. desember 2009 03:15 Morgan Freeman og Matt Damon í nýjustu mynd Clints Eastwood, Invictus.
Þrír mánuðir eru þangað til Óskarsverðlaunin verða afhent í Los Angeles. Nú þegar eru menn farnir að spá því að samkeppnin í flokknum Besta myndin verði sú harðasta í langan tíma. Til þess að hressa upp á Óskarsverðlaunin og gera þau vinsældavænni brá Óskarsakademían á það ráð að fjölga myndunum, sem keppa í flokknum Besta myndin, úr fimm í tíu. Síðast kepptu tíu myndir um Óskarinn árið 1944 og verður því áhugavert að fylgjast með þessari óvæntu breytingu. Þá bar Casablanca sigur úr býtum og er hún ein af hinum sígildu myndum kvikmyndasögunnar. Margar myndir hafa verið nefndar til sögunnar sem mögulegir kandídatar á næsta ári, þar á meðal myndir sem hingað til hefðu líklega aldrei hlotið náð fyrir augum akademíunnar. Þar má nefna Star Trek-mynd JJ Abrams, Avatar eftir James Cameron, sem margir bíða með mikilli eftirvæntingu, og geimverutryllinn District 9 sem sló óvænt í gegn í sumar. Nine, byggð á samnefndum söngleik á Broadway, er einnig talin gott Óskarsefni enda er leikstjórinn Rob Marshall hinn sami og gerði söngvamyndina Chicago. Hún vann Óskarinn sem besta myndin árið 2003. Clint Eastwood er alltaf líklegur þegar Óskar frændi er annars vegar. Nýjasta myndin hans, Invictus, þykir líkleg til afreka. Hún gerist í Suður-Afríku og fjallar um það hvernig þáverandi forseti landsins, Nelson Mandela, fékk þjóðina til að sameinast yfir ruðningsliði landsins þegar það vann heimsmeistarakeppnina árið 1995. Ekki skemmir fyrir að gæðaleikarinn Morgan Freeman fer með hlutverk Mandela en hann lék síðast fyrir Eastwood í Million Dollar Baby. Einnig fer Matt Damon með eitt aðalhlutverkanna. The Hurt Locker í leikstjórn Kathryn Bigelow, sem fjallar um sprengjusérfræðinga í Írak, gæti komist á topp tíu, rétt eins og Inglorious Basterds, stríðsópus Quentins Tarantino. Báðar hlutu þær mjög góða dóma þegar þær voru frumsýndar í sumar. Aðrar myndir sem þykja líklegar eru Precious, sem fjallar um menntaskólanema sem þjáist af offitu, The Road með Viggo Mortensen í aðalhlutverki og A Serious Man, nýjasta mynd Coen-bræðranna. The Lovely Bones í leikstjórn Peters Jackson gæti einnig komið til greina ásamt teiknimyndinni Up. Síðan er spurning hvort Brothers, sem Sigurjón Sighvatsson framleiðir, komist í hóp hinna tíu bestu en Sigurjón ætlar að eyða fjögur hundruð milljónum í Óskarsherferð vegna myndarinnar. Með aðalhlutverkin fara Jake Gyllenhaal og Tobey Maguire. Það er því ljóst að samkeppnin um bestu myndina gæti orðið mjög hörð og líklega verða þar myndir sem hingað til hafa ekki þótt nógu listrænar til að komast í hóp hinna fimm útvöldu. Tilkynnt verður um tilnefningarnar 2. febrúar og því munu vangaveltur kvikmyndaspekúlanta halda áfram sem aldrei fyrr á næstu mánuðum.
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira