Smökkuðu sæagrasúpu 5. desember 2009 07:00 Ljúffeng súpa. Vel fór á með þeim Snorra, Kristínu, Badda og Maríu á Sægreifanum þar sem þau borðuðu sæagrasúpu á meðan þau ræddu um tónlistina. Fréttablaðið/Valli
Snorri Helgason, Bjarni Lárus Hall, María Magnúsdóttir og Kristín Bergsdóttir eru öll að gefa út sínar fyrstu sólóplötur um þessar mundir. Blaðamaður hitti þau á Sægreifanum og spurði þau spjörunum úr á meðan þau gæddu sér á sæagrasúpu sem er ný á matseðlinum. Bjarni Lárus Hall, betur þekktur sem Baddi úr hljómsveitinni Jeff Who? hefur nú sent frá sér sína fyrstu sólóplötu sem nefnist The Long Way Home. Snorri Helgason úr Sprengjuhöllinni er einnig að þreyta frumraun sína sem sólólistamaður og sendi nýverið frá sér plötuna I‘m Gonna Put My Name On Your Door. Þær María og Kristín eru hins vegar að stíga sín fyrstu skref í tónlistarútgáfu, María með plötuna Not Your Housewife og Kristín með plötuna Mubla. Er mikil vinna fyrir tónlistarmenn að koma sér á framfæri um jólin? „Maður þarf bara að vera svolítil frekja,“ segir María. „Manni er yfirleitt vel tekið, en maður þarf að vera duglegur að láta vita af sér,“ segir Kristín. „Ég reyndi að vera með fyrir jólatörnina, en mér var sagt að það væru 200 titlar að koma út fyrir jól svo það er ekkert djók,“ segir María. Þeir Baddi og Snorri segja það mikil viðbrigði að gefa út plötur upp á eigin spýtur. „Það er allt öðruvísi og því fylgja bæði kostir og gallar,“ segir Baddi og Snorri tekur undir. „Maður ræður öllu, en þarf líka að gera allt,“ segir hann. Sæagrasúpan er borin fram með brauðkörfu og smjöri. „Það eru sæbjúgu ofan í,“ segir Kolbrún sem ber fram súpuna og sýnir bita í einni skálinni. „Hvað er það?“ spyr Kristín „Eitthvert loðdýr?“ segir hún og hlær. Eruð þið stressuð yfir viðbrögðum fólks þegar tónlistin ykkar er annars vegar? „Já, ég verð að viðurkenna að ég er mjög stressuð, en ég hef fengið frekar jákvæða umfjöllun. Maður þarf að læra að taka hvorki inn á sig það slæma né það góða,“ segir María og Baddi tekur í sama streng. „Mér finnst þetta mjög stressandi. Þegar maður er búinn að vera í hljómsveit fær maður kannski meiri umfjöllun, sem er frekar ósanngjarnt því ég er ekki að gera neitt annað en María og Kristín, en á móti kemur er að þeirra diskar eru dæmdir út frá því hvernig þeir eru á meðan ég er hræddur um að tónlistin mín verði tengd við hljómsveitina,“ segir hann. Kristín og Snorri eru á öðru máli. „Ég er bara ótrúlega spennt að fá álit frá einhverjum sem þekkir mig ekki neitt,“ segir hún og Snorri er jafnafslappaður. „Ég hef verið skeindur svo harkalega að ég er ýmsu vanur,“ segir hann og brosir. Sæagrasúpan rann ljúflega niður og allar skálar eru tómar. En skyldu kynörvandi áhrif súpunnar vera farin að láta á sér kræla? „Hún er ekki farin að kikka inn strax,“ segir Snorri. - ag
Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Sjá meira