Ragnhildur gerir mynd um fíkla 10. desember 2009 04:45 Fjölmiðlakonan hefur fengið handritsstyrk vegna heimildarmyndarinnar Fíkill. fréttablaðið/anton
Fjölmiðlakonan Ragnhildur Magnúsdóttir hefur fengið handritsstyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands vegna heimildarmyndarinnar Fíkill. „Ég fékk lítinn, sætan handritsstyrk í sumar og var að dútla mér við þetta en hugmyndin var búin að veltast um í hausnum á mér lengi,“ segir Ragnhildur. Myndin fjallar á óhefðbundinn hátt um nokkra einstaklinga sem áttu við fíkniefnavanda að stríða en náðu að snúa lífi sínu við. Áður hefur Ragnhildur búið til heimildarmyndina From Oakland to Iceland sem fékk fínar viðtökur. Hún fjallar um ferðalag plötusnúðsins Dj Platurn, bróður Ragnhildar, til Íslands eftir 25 ára búsetu í Bandaríkjunum. „Ólíkt fyrstu myndinni þá ætla ég ekki að framkvæma þessa mynd fyrr en ég fæ framleiðslustyrk. Ég er búin að gera mynd með engum styrkjum. Það var frábær reynsla og ég lærði ofboðslega mikið af því en ég ætla að gera þetta í réttri röð ef ég ætla að gera þetta aftur,“ segir Ragnhildur. Vegferð From Oakland to Iceland er ekki lokið. Myndin hefur verið sýnd á MTV-vef Skandinavíu, í Kanada og á Íslandi og nú er plakatið sem var gert fyrir myndina ofarlega á lista í nýrri íslenskri könnun yfir bestu bíómyndaplaköt áratugarins. „Þetta kom mér mjög mikið á óvart því það vita flestir að þessi mynd var gerð fyrir mjög lítinn pening og fjármagnið fyrir plakatið var líka lítið,“ segir Ragnhildur, sem átti hugmyndina að plakatinu. Þórdís Claessen annaðist síðan grafíska hönnun þess. Ragnhildur hætti sem útvarpskona á Bylgjunni í október eftir nokkurra ára starf. „Ég fór í stutt endurhæfingarfrí vegna bílslysameiðsla en sagði upp verktakasamningi mínum við Bylgjuna í kjölfarið. Ég fann að mig langaði ekki aftur í akkúrat þetta starf þegar ég fer aftur að vinna. Það var bara kominn tími á breytingar.“ - fb
Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Sjá meira