Sport

Söderling kominn í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Robin Söderling í París í morgun.
Robin Söderling í París í morgun. Nordic Photos / AFP

Svíinn Robin Söderling er kominn í undanúrslit á Opna franska meistaramótinu í tennis eftir öruggan sigur á Rússanum Nikolay Davydenko í morgun.

Söderling vakti mikla athygli er hann sló út sjálfan Rafael Nadal í 32-manna úrslitum mótsins og var þar með fyrsti maðurinn til að vinna Nadal á Opna franska.

Þetta er í fyrsta sinn sem Söderling kemst í undanúrslit stórmóts í tennis en hann fór nokkuð létt með Davydenko í morgun. Hann vann í þremur settum, 6-1, 6-3 og 6-1.

Söderling mætir annað hvort Bretanum Andy Murray eða Fernando Gonzalez frá Chile í undanúrslitunum.

Í einliðaleik kvenna komst Dinara Safina frá Rússlandi áfram í undanúrslitin með sigri á Victoriu Azarenku frá Hvíta-Rússlandi, 1-6, 6-4 og 6-2. Safina er í efsta sæti styrkleikalista mótsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×