Næst verður tekið á yfirveðsetningunni 30. september 2009 05:00 Tækifæri Mikilvægt er að fólk sem hefur farið illa út úr efnahagshruninu fái tækifæri til að koma undir sig fótunum fljótlega aftur sagði Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra á fundi um skuldir heimilanna á Grand hóteli í gær. Fréttablaðið/Pjetur
Vandinn sem fylgir skuldum sem heimilin ráða ekki við að borga af stendur í vegi fyrir endurreisn, og á því verður að taka, sagði Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra á fundi um skuldastöðu heimilanna í gær. Hann sagði að nú, þegar aðgerðir stjórnvalda til að taka á skuldavanda heimilanna væru tilbúnar, yrði að taka á yfirveðsetningu húsnæðis, þeim tilvikum þar sem áhvílandi lán væru hærri en andvirði fasteignar. Búast mætti við því að viðskiptabankarnir kæmu með tillögur um slíkar aðgerðir á næstunni. Enn hafa aðgerðir stjórnvalda til að taka á skuldavanda heimilanna ekki verið kynntar formlega. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er stefnt að því að slík kynning fari fram í dag. Árni sagði í gær að markmiðið með aðgerðum stjórnvalda væri ekki að gera fasteignaeigendur eins setta og þeir voru fyrir hrun. Markmiðið væri að milda það högg sem heimili og fjölskyldur hefðu orðið fyrir vegna hrunsins. Aðgerðir stjórnvalda verða tvíþættar, sagði Árni Páll á fundinum í gær. Almennu aðgerðunum er ætlað að styðja við greiðslugetu fólks með því að koma greiðslubyrði nærri því sem hún var fyrir hrunið. Við það mun höfuðstóllinn hækka, og þá er mögulegt að afskrifa þurfi hluta höfuðstólsins síðar, batni efnahagsástandið hér á landi ekki. Með slíkum aðgerðum eru gefin fyrirheit um að á meðan aðstæður séu erfiðar og launaþróun lakari en þróun neysluverðsvísitölu, og á meðan atvinnuleysi sé hátt, geti fólk borgað af lánum sínum miðað við þær aðstæður. Árni Páll sagði augljóst að reyna myndi á frekari úrræði fyrir fjölda fólks, trúlega nokkur þúsund. Þá þyrfti að grípa til sértækari aðgerða, en mikilvægt væri að hægt yrði að leysa úr vanda þessa hóps á einfaldan og fljótlegan hátt, án aðkomu dómstóla. Þá yrði greiðsluaðlögun áfram í boði fyrir þá sem ekki ættu önnur úrræði. Forðast yrði sömu mistök og hefðu verið gerð í fyrri kreppum, þar sem fólk hefði þurft að draga á eftir sér langan skuldahala árum saman. Mikilvægt væri að leyfa fólki að komast fljótt á fætur aftur, svo svört atvinnustarfsemi yrði ekki algengari en nú.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira