Einar Ágúst skilinn útundan 5. september 2009 08:00 Hljómsveitin Skítamórall spilar á tuttugu ára afmælistónleikum á Rúbín í október.
Þrátt fyrir að öllu verði tjaldað til á tuttugu ára afmælistónleikum Skítamórals á Rúbín í Öskjuhlíð 8. október verður fyrrverandi söngvari sveitarinnar, Einar Ágúst Víðisson, ekki á meðal gesta. Sammi úr Jagúar mun stýra blásaratríói og Roland Hartwell stjórna strengjasveit auk þess sem fleiri gestir leggja sveitinni lið. Alls verða sextán hljóðfæraleikarar sem koma við sögu á tónleikunum en Einar Ágúst fær ekki að vera með. „Það var eiginlega ekki gert,“ segir gítarleikarinn Addi Fannar spurður hvort haft hefði verið samband við Einar. „En það verður gestkvæmt.“ Ekki náðist í Einar Ágúst þegar Fréttablaðið ætlaði að leita eftir viðbrögðum hans. Tónleikarnir áttu upphaflega að vera í Stúdíó Sýrlandi en Rúbín þótti henta betur, enda er auðveldara að skapa huggulega stemningu þar, því um órafmagnaða tónleika er að ræða. „Þetta er huggulegur staður. Á Rúbín er klettaveggur sem er aðaleinkenni staðarins og það verður örugglega hægt að búa til kósí stemningu,“ segir Addi Fannar. Aðeins um 180 áhorfendum verður hleypt inn á tónleikana, sem verða teknir upp og gefnir út fyrir jól á geisla- og mynddiski. Líklega verða þetta stærstu tónleikarnir í sögu Skítamórals. „Við höfum verið minna í formlegum tónleikum og meira að sinna dansgeiranum. En við höfum aldrei lagt eins mikið í konsert og núna. Þetta kostar heilan helling en þetta er bara svo gaman. Það er kominn tími á að gera eitthvað sérstakt eftir tuttugu ár.“- fb
Mest lesið Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Lífið Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Lífið Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Lífið „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Tíska og hönnun Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ Lífið Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerð síðasta árs Bíó og sjónvarp Blint stefnumót heppnaðist vel Menning Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Lífið Staðgöngumóðir „öruggasta leiðin“ til að stækka fjölskylduna Lífið Désirée prinsessa látin Lífið Fleiri fréttir Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Ofurnæmni Önnu Birtu: Hefur heyrt hugsanir fólks í Kringlunni Désirée prinsessa látin Staðgöngumóðir „öruggasta leiðin“ til að stækka fjölskylduna Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Kynntist manninum á Tinder í Covid Vance á von á barni Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Ótrúlegur dagur Vignis: Lottóvinningur, 180 í pílu og sigur á Carlsen Vesturbæingar blótuðu þorrann langt fram á nótt Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ „Ég hef aldrei séð dansandi poka“ Eldri bróðir lagði línur að lífinu í New York Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Fagna tíu árum af ást Þekkja Kringlugestir borgarstjórann? Aron Mola ástfanginn í bíó Krútteyjurnar Ischia og Sikiley: Ástu leist ekki á einnar evru húsin Rybak snýr aftur en frægir bræður sniðganga Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Stjörnulífið: Áslaug náði ekki að tala Trump til „Kynlíf okkar hjóna hefur breyst mikið síðustu ár“ Greipur telur Trump hafa ruglast á Grænlandi og Íslandi „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Krakkatía vikunnar: Fjöll, friðarsúlan og geimurinn Auðunn Lúthersson selur austurbæjarperlu Skautafjör á Laugarvatni í dag Sjá meira