Jackson kvaddur 5. september 2009 06:00 Janet Jackson ásamt Jackson-bræðrunum sem voru allir klæddir eins í jarðarförinni.fréttablaðið/ap
Fjölskylda og vinir poppkóngsins Michaels Jackson kvöddu hann í hinsta sinn þegar hann var jarðaður í Los Angeles. Á meðal þeirra tvö hundruð gesta sem voru viðstaddir jarðarförina voru Elizabeth Taylor, Macaulay Culkin og upptökustjórinn Quincy Jones. Gladys Knight söng við athöfnina auk þess sem mannréttindafrömuðurinn Al Sharpton hélt ræðu. Jarðarförin frestaðist um einn klukkutíma vegna þess að fjölskylda Jacksons tafðist. Á endanum mætti hersingin síðan í hverjum bílnum á fætur öðrum, alls 31 talsins. Bræður Jacksons, þeir Randy, Jackie, Tito, Jermaine og Marlon báru kistuna, sem var úr skíra gulli. Allir klæddust þeir svörtum jakkafötum auk þess sem hver og einn var með hvítan hanska á annarri hendi til minningar um bróður sinn. Börn Jacksons, Prince Michael, Paris og Prince Michael II sátu í fremstu röð ásamt afa sínum og ömmu, Katherine og Joe Jackson. Á meðal fleiri gesta voru grínistinn Chris Tucker og Lisa Marie Presley, fyrrverandi eiginkona popparans. Rúmlega tveir mánuðir eru liðnir síðan Jackson lést úr banvænum skammti lyfseðilsskyldra lyfja, fimmtugur að aldri. Í síðustu viku var úrskurðað að hann hefði verið drepinn og í framhaldinu var hægt að leggja drögin að jarðarförinni, sem fór fram í Forest Lawn-kirkjugarðinum þar sem stjörnur á borð við Humphrey Bogart, Errol Flynn og Clark Gable liggja. Upphaflega átti að jarða Jackson 29. ágúst, sem hefði orðið 51 árs afmælisdagur hans, en því var frestað vegna rannsóknarinnar á dauða hans. gullkista Michael Jackson var jarðaður í þessari gullkistu, tveimur mánuðum eftir að hann lést úr banvænum lyfjaskammti.fréttablaðið/ap
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira