Innlent

Utanríkisnefnd fundar um Icesave - Geir Haarde á fundinum

Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra og Björn Bjarnason sitja saman á fundi utanríkisnefndar.
Geir H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra og Björn Bjarnason sitja saman á fundi utanríkisnefndar.

Fundur utanríkisnefndar um málefni Icesave var að hefjast rétt í þessu. Það var Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknaflokksins, sem óskaði eftir fundinum. Ræða á trúnaðargögn sem varða samskipti íslenskra stjórnvalda og þeirra bresku vegna Icesave-deilunnar. Um er að ræða samskipti sem áttu sér stað frá 3 október til þess sjötta.

Siv sagði í viðtali við Mbl.is í gær að hún vildi fá þessar upplýsingar inn í utanríkismálanefndina. Henni þykir eðlilegt að þingmenn fái að vita hvort þarna séu gögn sem geti skýrt hina dramatísku atburðarrás sem átti sér stað í kringum Icesave-ábyrgðina sem að lokum féll á skattborgara þessa lands.

Meðal þeirra sem sitja fundinn eru Björn Bjarnason og svo Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×