ÞRÍLEIKUR UM ÁST OG ÓGN 6. nóvember 2009 06:00 Dansleikhús Steinunn Ketilsdóttir og Brian Gerke.
Nú um helgina verður dansparið og höfundarnir Steinunn Ketilsdóttir og Brian Gerke með sýningu í Hafnarfjarðarleikhúsinu: „Crazy Love Butter" kalla þau dagskrá sem verður samsett af þremur dönsum sem þau hafa unnið saman og sýnt víða um álfur. Sýningin verður flutt í tvígang, laugardags- og sunnudagskvöld kl. 20. Dúettarnir eru þríleikur um ástina sem samanstendur af dansverkunum „Crazy in Love with MR.PERFECT", „Love Always, Debbie and Susan" og „The Butterface". Verkin eiga það sameiginlegt að fjalla um ástina á einn eða annan hátt. Steinunn og Brian semja og flytja öll verkin. Fyrsta verkið „Crazy in Love with MR.PERFECT" var frumsýnt á Reykjavík Dance Festival árið 2007 og voru þau tilnefnd til Grímunnar fyrir það. Annað verkið þeirra „Love Always, Debbie and Susan" var frumsýnt á danshöfundakeppninni Danssolutions í Kaupmannahöfn 2008 og hlaut þar fyrstu verðlaun. Bæði verkin voru einnig valin í lokahóp Aerowaves-þátttakenda sem er eitt stærsta net danshátíða í Evrópu. Þriðja verkið „The Butterface" var framleitt af Dancescenen-leikhúsinu í Kaupmannahöfn og frumsýnt í febrúar á þessu ári. Hlaut það góðar viðtökur þar ytra en hefur enn ekki verið sýnt hér á landi og er því um Íslandsfrumsýningu að ræða. Danshöfundarnir Steinunn Ketilsdóttir og Brian Gerke eru bæði búsett hér á landi og starfa við danskennslu og listsköpun. Þau hafa skapað sér nafn sem danslistamenn og verið verðugir fulltrúar íslenskrar danslistar á erlendri grundu síðastliðin tvö ár. Hófu þau samvinnu sína í Hunter College í New York árið 2004 þar sem þau voru bæði við nám og hafa unnið saman síðan að hinum ýmsu verkefnum. Listrænt samstarf þeirra hófst árið 2007. Síðan þá hafa dansverk þeirra fengið góðar viðtökur á 54 sýningum í 18 erlendum borgum auk sýninga hér á landi. Þau hafa skapað sér nafn fyrir snjalla blöndu af dansi og leikhúsi og hlotið góða dóma í erlendum blöðum. Verkum þeirra hefur verið lýst sem sönnum, áköfum, fallegum, dimmum, djörfum, furðulegum og fyndnum. Þau hafa sýnt hæfileika til að finna dýpt í aðstæðum sem virðast við fyrstu sýn léttvægar og jafnvel hversdagslegar. Leit þeirra að tilfinningalega þrungnum undirtóni sem falinn er í daglegum aðstæðum hefur aðgreint þau frá jafningjum sínum og gert þau að danspari sem spennandi er að fylgjast með. Eins og áður sagði hefjast sýningarnar í Hafnarfjarðarleikhúsinu kl. 20 og lofa þau Steinunn og Brian góðu partíi með dansi, dj og skemmtun. Hægt er að panta miða í síma 555-2222 og einnig á midi.is. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira