Lífið

Skemmtilegt og fræðandi barnaefni

Selma Hrönn Maríudóttir.
Selma Hrönn Maríudóttir.

Selma Hrönn Maríudóttir vefhönnuður og rafeindavirki gaf út barnabækurnar um Glingló, Dabba, Rex og félaga. Hún gerði einnig barnavef fyrir íslenska krakka, grallarar.is, sem styður við bækurnar.

„Hugmyndin varð til þegar kisurnar okkar Glingló og Dabbi sem nú eru 11 ára voru kettlingar," svarar Selma aðspurð út í sögurnar.

„Þær hafa verið uppspretta ótal hugmynda og uppátækja í gegnum árin og það flaug í gegnum hugann á mér að það yrði gaman að gera þær að sögupersónum einn daginn," segir Selma.

„Mig langaði að búa til barnaefni sem væri hvort tveggja í senn, skemmtilegt og fræðandi. Strákarnir okkar Mikael og Gabríel eru í dag 5 og 6 ára og við höfum ferðast mjög mikið með þá um landið," segir hún.

„Í þeim ferðum höfum við leitað uppi staði sem eru áhugaverðir fyrir alla fjölskylduna. Þannig kom hugmyndin að láta hverja bók fjalla ýmist um ákveðið efni eins og jólin eða ákveðinn stað eins og til dæmis Sandgerði og Vestmannaeyjar. Grallararnir kynna ungum lesendum ýmis bæjarfélög á landinu og benda á skemmtilega afþreyingu á hverjum stað sem kostar lítið nema úthaldið," segir Selma.

„Ég byrja á því að skrifa sögurnar og sendi svo myndir af staðháttum til Brynhildar Jennýar teiknara og lýsi því sem mig langar að sjá á myndunum. Brynhildur Jenný er búin að ljúka mastersnámi í teiknimyndagerð og er mjög fær eins og sést á myndunum. Þegar teikningarnar eru tilbúnar þá klára ég vísurnar, en sögurnar eru bæði í vísnaformi og einnig sagðar á einföldu máli fyrir yngstu lesendurna."

Lestu mikið fyrir strákana þína? „Ég les nokkuð fyrir strákana mína og þeim finnst gaman að láta mig spyrja út í efnið eftir lesturinn. Þeir eru mjög duglegir að nota vefinn grallarar.is og eru meðal annars hjálparkokkarnir í uppskriftahlutanum," segir Selma.

Grallarar.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.