Downey í stríð við geimverur 3. september 2009 03:45 Nýtt par. Robert Downey Jr. og Jon Favreau eru hugsanlega nýtt par í kvikmyndaheiminum, en þeir ætla að gera kvikmynd um stríð kúreka og geimvera.
Leikstjórinn Jon Favreau hefur samþykkt, samkvæmt kvikmyndabiblíunni Variety, að leikstýra kvikmyndinni Kúrekar og geimverur eða Cowboys and Aliens. Þeir sem halda að myndin fjalli um kúreka sem eigi í stríði við indjána þar til geimverur lenda á miðri sléttunni í Arizona og gefa stríðinu nýja vídd hafa bara nokkuð rétt fyrir sér. Myndin er byggð á hasarmyndasögu eftir Fred Van Lente og Andrew Foley sem kom út fyrir þremur árum og hefur notið töluverðra vinsælda meðal hasarmyndasagnanörda. Þetta verður allt athyglisverðara í ljósi þess að Robert Downey Jr. mun að öllum líkindum leika aðalhlutverkið, því þá er kominn vísir að nýju tvíeyki í Hollywood. Hefð hefur verið fyrir nánu sambandi leikstjóra og leikara og nægir þar að nefna De Niro og Scorsese, Ridley Scott og Russell Crowe og svona mætti lengi telja. Favreau og Downey eru mennirnir á bak við Iron Man-myndirnar en númer tvö verður frumsýnd næsta sumar. Fyrsta myndin sló í gegn í miðasölu enda fór Downey á kostum í hlutverki Tony Starks, hins drykkfellda og lausgirta uppfinningamanns, sem fær óvænt tækifæri til að bjarga heiminum í járngallanum sínum.
Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira