Dagur Kári leikstýrir nýjum sjónvarpsþætti 3. september 2009 07:30 Dagur Kári Pétursson mun að öllum líkindum leikstýra nýrri, íslenskri sjónvarpsþáttaröð sem hefur verið gefið vinnuheitið Betlehem. Jóhann Ævar Grímsson skrifar handritið.
Dagur Kári Pétursson mun leikstýra nýjum sjónvarpsþætti sem hefur verið gefið vinnuheitið Betlehem. Jóhann Ævar Grímsson skrifar handritið en þættirnir fjalla um blokk í Breiðholti og persónurnar sem þar búa. „Það er voðalega lítið hægt að segja núna um þættina, við erum bara að fjármagna þá og svona. En þeir eru teikniborðinu," segir Jóhann Ævar í samtali við Fréttablaðið. Ef þættirnir verða að veruleika verður þetta í fyrsta skipti sem Dagur Kári leikstýrir í sjónvarpi. Auk þess yrði Betlehem fyrsta verkefni Dags sem hann skrifaði ekki sjálfur. „Dagur er mjög góður leikstjóri, hæfur í því sem hann gerir og á eflaust eftir að bæta einhverri snilld við þetta," segir Jóhann. Dagur Kári er um þessar mundir að undirbúa sig fyrir Kanadaferð því kvikmyndin hans A Good Heart verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto og tekur þar þátt í „Special Presentation"-flokknum ásamt leikstjórum á borð við Werner Herzog, Pedro Almodóvar og Jane Champion auk Drew Barrymore sem er að leikstýra kvikmynd í fyrsta sinn. A Good Heart hefur verið nokkuð lengi á teikniborðinu en upphaflega stóð til að Tom Waits og Ryan Goosling léku aðalhlutverkin. Þegar ekki tókst að samræma dagskrá þeirra voru engir aukvisar fundnir í staðinn, þeir Paul Dano og Brian Cox. - fgg
Mest lesið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Lífið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Fleiri fréttir „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Sjá meira