Segir Rúv hafa sýnt sér vanvirðingu og ruddalega framkomu Breki Logason skrifar 3. september 2009 10:40 Ólafur F. Magnússon ætlar í meiðyrðarmál við Ríkisútvarpið.
Ólafur F. Magnússon borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri ætlar í meiðyrðarmál við Rúv vegna ummæla sem látin voru falla í hádegisfréttum útvarpsins á mánudagsmorgun. Þar var því haldið fram að Ólafur hefði látið leggja fé inn á sinn eigin reikning en ekki til Frjálslyndaflokksins. Ólafur segir að með þeim ummælum hefði Rúv verið að þjófkenna sig. „Ég er síðasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi sem myndi draga að sér fé, fáir hafa sýnt meiri ráðdeildarsemi með fjármuni almennings og ég," segir Ólafur sem er orðinn þreyttur á framkomu Rúv í sinn garð. „Frá því að ég var borgarstjóri hefur Ríkisútvarpið alltaf reynt að gera verk mín tortryggileg. Þeir hafa bæði sýnt mér vanvirðingu og ruddalega framkomu. Þá er ég að tala um fréttastofuna og forsvarsmenn Kastljóss og Silfur Egils, mælirinn er einfaldlega fullur núna." Ólafur telur að Rúv þurfi meira aðhald. „Ekki síst af hálfu þeirra sem borga fyrir þetta spillingarbæli sem Rúv er." Ólafur segist ætla að leggja fram fyrirspurn um þetta mál í borgarráði á eftir en hann telur afar óeðlilegt að borgarstjóri hafi svarað bréfi frá Frjálslyndaflokknum sem var uppfullt af rangfærslum. „Þetta er algjörlega mál mitt og skrifstofu borgarstjórnar." Málið snýst um ásakanir Guðjóns Arnars Kristjánssonar formanns Frjálslyndaflokksins sem hefur haldið því fram að Ólafur hafi látið greiða lögbundinn styrk borgarinnar til stjórnmálaflokka inn á reikning með sinni kennitölu í upphafi árs 2008 en ekki til flokksins líkt og tíðkast hefur. Þetta segir Ólafur ekki rétt. Hann segir féð hafa farið inn á á reikning borgarmálafélags F-listans sem hann og fleiri félagar í flokknum hafi stofnað. Það félag sé með sér kennitölu og hann sé ekki einn í því félagi. Þannig sé þetta einnig hjá Vinstri grænum í borginni. „Þorleifur Gunnlaugsson oddviti VG hefur lýst yfir mikilli skömm við mig um þá aðför sem hefur verið gerð að mér." Ólafur segir að viðbrögð sín við frétt Rúv séu að þeir fái að gjalda fyrir þessa framkomu í sinn garð. „Sem hefur verið óheiðarleg um langan tíma."
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Sjá meira