Fimmta hver götuð víðar en í eyrunum 24. nóvember 2009 01:30 Húðflúrari að störfum Rúmur þriðjungur barna á aldrinum 14 til 15 ára sem hafa fengið sér húðflúr hefur ekki fengið til þess leyfis foreldra. Fréttablaðið/Vilhelm
Tæpur fimmtungur, eða 19,6 prósent, unglingsstúlkna í tíunda bekk grunnskóla er með hringi eða pinna annars staðar en í eyrunum. Þetta kemur fram í könnun Rannsókna og greiningar meðal grunnskólabarna. 6,5 prósent drengja á sama aldri bera ámóta skraut. Þá kemur fram að 5,8 prósent drengja í tíunda bekk hafa látið setja á sig varanlegt húðflúr, en 4,7 prósent stúlknanna. Hlutfallið lækkar heldur með yngri aldri, en í níunda bekk eru 13,6 prósent stúlkna með pinna og hringi annars staðar en í eyrunum og 6,3 prósent í áttunda bekk. Þá bera ekki margar stúlkur á þeim aldri varanleg húðflúr, 2,2 prósent í níunda bekk og 1,6 prósent í yngsta hópnum. Svipaða sögu er að segja af drengjunum. Rannsóknin var lögð fyrir árið 2008 meðal um 85 prósenta nemenda á landinu öllu. Þá virðist meirihluti unglinganna hafa fengið leyfi fyrir götun eða flúri hjá forráðamönnum, en færri hugsað út í smithættu eða fengið leiðbeiningar um hana. Þá mun vera misbrestur á að húðflúrstofur fari fram á að viðskiptavinir framvísi skilríkjum. Af þeim krökkum í tíunda bekk sem fengið hafa sér varanlegt húðflúr hefur 81 prósent fengið leyfi foreldra fyrir fram, en tæpur fimmtungur ekki. Hlutfall þeirra sem ekki hafa fengið leyfi er svo aftur hærra eftir því sem börnin eru yngri sem farið hafa þessa leið. „Við höfum verið að reyna að láta draga eitthvað úr þessu,“ segir Matthías Halldórsson landlæknir. „Og af því þetta er ekki bannað, að passa líka upp á að þeir sem gera þetta hafi einhverja kunnáttu í sóttvörnum og slíku.“ Að sögn landlæknis þurfa þeir sem reka húðflúrstofur að hafa fengið upplýsingar og leiðbeiningar hjá embættinu áður en þeir fá starfsleyfi. „Hér starfar hjúkrunarfræðingur á sóttvarnasviði sem talar við fólkið og bendir þeim á helstu hættur.“ Fari húðflúrstofur ekki að fyrirmælum um að gæta að aldri þeirra sem láta flúra sig eða gata, eða gæti þess ekki að börn hafi leyfi foreldra, segir Matthías stofurnar hætta á að missa starfsleyfi sitt. „Þær verða að gangast undir skilmála Heilbrigðiseftirlitsins, sem hefur verið í samráði við okkur.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira