Svandís hefur engar skýringar fengið frá Jóhönnu 24. nóvember 2009 13:00 Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur ekki fengið skýringar frá forsætisráðherra á ummælum hennar um stóriðjumálin á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Umhverfisráðherra á erfitt með að tjá sig um málið þar sem hún gæti átt eftir að úrskurða í því. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina að hún væri sannfærð um að hægt væri að hefja framkvæmdir við álver í Helguvík í vor og að hindrunum yrði ýtt úr vegi vegna lagningar suðvesturlínu í tengslum við álverið. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra sagði við fréttamann okkar um helgina að Jóhanna yrði að skýra þessi ummæli sín nánar. Að loknum ríkisstjórnarfundi skömmu fyrir hádegi sagði Svandís að þetta mál hefði ekki verið þar til umræðu og að forsætisráðherra hefði ekki skýrt þetta sérstaklega fyrir sér. „Það hefur ekki verið á dagskrá í okkar samskiptum. Við sátum hér á ríkisstjórnarfundi og þar voru önnur mál undir," sagði Svandís. Svandís sagði að málefni Suðvesturlínu vera í ákveðnu ferli. „Við sjáum bara hvernig því vindur fram. Skipulagsstofnun er búin að úrskurða hvað það mál varðar og kærufrestur stendur yfir." Þá sagðist Svandís eiga erfitt með að tjá sig um málið þar sem hún gæti átt eftir að úrskurða í því.
Mest lesið Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Innlent Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Erlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Innlent Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Erlent Starfsmaður verslunar sleginn Innlent Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar Innlent Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Innlent Veittu eftirför í Árbæ Innlent Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Þjófar réðust á starfsmann verslunar Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Gagnaþjófnaður til rannsóknar á þremur stöðum Íbúasamtök vilja láta endurskoða rafrænt eftirlit Bílastæðasjóðs Víðfeðm rannsókn, baunað á skólaþorp á bílastæði og stórvirki Mál Margrétar fyrir opnum tjöldum Útilokað að þeir hafi ekki vitað af efnunum og fá þunga dóma „Enn sem er komið er staðan óbreytt og orð Sönnu ósönn“ Sjá meira