Lögmanni Baldurs ofbýður vinnubrögð sérstaks saksóknara 24. nóvember 2009 09:23 Karl Axelsson er lögmaður Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. Mynd/Valgarður Gíslason
Karl Axelsson, lögmaður Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, skrifar í dag opið bréf til Ólafs Haukssonar, sérstaks saksóknara. Bréfið er birt í Morgunblaðinu og segir Karl að sér ofbjóði sú meðferð sem Baldur hefur verið látinn sæta undanfarið en hann er grunaður um að hafa brotið lög um innherjaviðskipti þegar hann seldi hlutabréf sín í Landsbankanum rétt fyrir hrun. Í bréfinu gagnrýnir Karl ítrekaða leka hjá embætti sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlitinu. „Sá ítrekaði leki hefur svo alltaf átt sér stað á þeim tímapunktum þegar það hentaði ímyndarherferð viðkomandi embætta best en Baldri verst." Lögmaðurinn segir að Baldur hafi verið hrakinn úr embætti auk þess sem eignir hans hafi verið frystar án þess að sú aðgerð hafi verið rökstudd einu orði. Karl segir að fyrir liggi að mál Baldurs hafi verið fellt niður hjá Fjármálaeftirlitinu snemma í maí á þessu ári. Hann gefur lítið fyrir rökstuðning eftirlitsins í júlí þegar málinu var vísað til sérstaks saksóknara og að nýju upplýsingarnar fælust í fundargerðum og vinnugögnum samráðshóps um fjármálastöðugleika.Baldur Guðlaugsson.„Innherjaupplýsingarnar sem Baldur er grunaður um að hafa fengið á fundum fyrrnefnds starfshóps um fjármálastöðugleika. Í hópnum sátu fulltrúar frá forsætisráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu (Baldur), viðskiptaráðuneytinu, Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka. Því er sem sagt haldið fram að Baldur kunni að hafa fengið innherjaupplýsingar á fundum sínum í starfshópi sem fulltrúi Fjármáleftirlitsins sat í!" Þá spyr Karl hvort það geti verið að verið sé að leggja stjórnvöldum lið við að losa sig við embættismann sem talinn er óæskilegur. „Getur verið að þörfin fyrir að sýna þjóðinni skörungsskapinn hafi borið menn ofurliði? Baldur Guðlaugsson liggur sjálfsagt vel við höggi, tilvalið viðfangsefni í vinsældakapphlaupinu, enda fulltrúi kerfis og flokks, sem nú um stundir er mjög til vinsælda fallið að gera öðrum fremur ábyrgan fyrir hruni banka og efnahagskreppu," segir lögmaðurinn. Í lok bréfsins hvetur Karl sérstakan saksóknara til þess að láta rannsókn málsins niður falla nú þegar enda sé um ólögmætar aðgerðir að ræða að mati Karls.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent Fleiri fréttir Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið Sjá meira