Ummæli Jóhönnu mistúlkuð 24. nóvember 2009 13:55
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði í umræðum á Alþingi í dag að ekki væri nein ástæða til að hafa áhyggjur af ummæli forsætisráðherra um stóriðjumálin á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina. Orð hennar hafi verið mistúlkuð. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina að hún væri sannfærð um að hægt væri að hefja framkvæmdir við álver í Helguvík í vor og að hindrunum yrði ýtt úr vegi vegna lagningar suðvesturlínu í tengslum við álverið. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Steingrím út í málið á þingfundi og vildi vita hvort að forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hefðu rætt málið sín á milli. Steingrímu sagði að í stöðugleikasáttmálanum standi að það sé vilji ríkisstjórnarinnar að greiða götu þeirra framkvæmda sem þegar höfðu verið ákveðnar. „En það ber ekki og hefur aldrei átt að túlka þessi orð þannig að stæði eitthvað annað til en að framfylgja eðlilegri stjórnsýslu og fara að lögum og reglum þar á meðal lögum um mat á umhverfisáhrifum og stjórnsýslulögum," sagði ráðherrann. „Það stendur ekkert annað til, og hefur aldrei annað staðið til, en að ástunda faglega og vandaða stjórnsýslu í umhverfisráðuneytinu sem og annars staðar. Það er misskilningur ef menn leggja einhvern annan skilning í stjórnarsáttmálans eða einstaka yfirlýsingar ráðamanna," sagði Steingrímur. Þá sagði ráðherrann að stjórnarsamstarfið væri gott. „Þó að samstarfið sé gott í þessari ríkisstjórn, ekki síst á milli mín og forsætisráðherra, þá er það ekki svo náið að við semjum ræðurnar fyrir hvort annað á flokksfundum. Það er ekki svo náið en samstarfið er gott."
Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent Fleiri fréttir Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Sjá meira