Laxveiðiferðir heita ráðgjafaþjónusta á bankamáli Sólveig Bergmann skrifar 5. nóvember 2009 18:50
Laxveiðiferðir bankamanna virðast síður en svo liðnar undir lok. Fullyrt er að sá háttur sé hafður á að reikningar fyrir veiðferðir séu skráðir sem sérfræðiráðgjöf í bókhaldi ríkisbankanna. Það er ekkert nýtt undir sólinni að fulltrúar stórfyrirtækja og banka hafi liðkað fyrir viðskiptum við árbakkann. Upp úr 1980 var þetta kannski einn veiðitúr á sumri undir þeim formerkjum að verið væri að greiða fyrir samningaviðræðum. Eftir því sem einkavæðingin ágerðist blés þetta út. Bestu laxveiðiár landsins voru fullbókaðar allt sumarið. Þeir sem til þekkja segja erlendum viðskiptamönnum þá hafa fækkað, í þerra stað voru það stjórnendur bankanna og kunningjahópar innan þeirra sem sinntu sínu áhugamáli. Dæmi eru um að veislutjöld hafi verið reist við árnar, þar sem uppáklæddir þjónar sinntu veiðimönnum sem einnig nutu lifandi tónlistar, úti í móa. Það var þá sem sérstök félög sem sáu um ferðirnar spruttu upp. Veiðiferðin var þá skilgreind sem ráðgjafaþjónusta á reikningi og skráð sem slík í bókhaldi bankanna. Eftir bankahrun dró verulega úr ferðum bankanna í laxveiði. Jafnvel gefið út að engar veiðiferðir yrðu farnar í ár, þrátt fyrir að sumir bankanna hefðu keypt veiðileyfi einhver ár fram í tímann. En þrátt fyrir dræmt sumar herma heimildir fréttastofu að þessi háttur sé enn hafður á. Bankarnir kaupi veiðileyfin ekki beint heldur láti þriðja aðila sjá um kaupin, sem svo fóðri reikninginn með allt öðru, líkt og ráðgjafaþjónustu. Eða eins og einn heimildarmanna fréttastofu orðar það: "Þessir sömu menn sitja enn við kjötkatlana í bönkunum og virðast ekki geta hætt að ljúga og stela"
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Fleiri fréttir Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi Sjá meira