Framkvæmd fyrir fimmtíu milljarða 5. nóvember 2009 02:00 framkvæmdin Hönnunar- og teiknivinna er ekki fullbúin og ljóst er að framkvæmdin verður minni í sniðum en fyrst var lagt upp með. Á kortinu sjást þau svæði sem fyrirhuguð eru undir nýbyggingar.
Fulltrúar tuttugu lífeyrissjóða skrifuðu undir viljayfirlýsingu við heilbrigðisráðuneytið, fyrir hönd ríkisvaldsins, í gær, um nýjan Landspítala. Hún felur í sér að sjóðirnir koma að fjármögnun og undirbúningi við byggingu nýs spítala. Sjóðirnir tuttugu eru með 83,22 prósent af heildareignum íslenskra lífeyrissjóða. Um mikla framkvæmd er að ræða, en heildarkostnaður við nýbygginguna verður um 33 milljarðar króna. Þar við bætist áætlaður kostnaður við ýmsan búnað spítalans, sjö milljarðar króna, og kostnaður við endurbyggingu eldra húsnæðis, um ellefu milljarðar króna. Samtals nemur kostnaður við verkefnið því 51 milljarði króna. Nýbyggingin verður alls 66 þúsund fermetrar í þremur meginhlutum. Hönnunarvinna hefst á næsta ári og skapar störf fyrir arkitekta og hönnuði. Framkvæmdir hefjast á síðari hluta ársins 2011 og standa fram á árið 2016. Meginþungi verkefnisins verður árin 2013 til 2015, en reiknað er með að framkvæmdin skapi 2.644 ársverk. Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, sagðist við undirritunina ánægður með aðkomu sjóðanna að verkefninu. Þeir hefðu sannfærst um að dýrara væri fyrir samfélagið að gera ekki neitt og þess í stað yrði ráðist í framkvæmdir við nýjan spítala. Gæta þyrfti hins vegar að því að ávöxtunarkrafa sjóðanna yrði uppfyllt. Í því ljósi nefndi Arnar aðkomu sjóðanna að Hvalfjarðargöngunum, en þau væru ein besta fjárfesting lífeyrissjóðanna fyrr og síðar. Lífeyrissjóðirnir væru fullsæmdir af því að fjárfesta líka í heilbrigðisskapandi starfsemi. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sagði samkomulagið táknræna yfirlýsingu um að Íslendingar ætluðu sér að eiga áfram heilbrigðiskerfi í fremstu röð. Hún lýsti sérstakri ánægju með aðkomu lífeyrissjóða á landsbyggðinni; hún sýndi að spítalinn yrði þjóðareign. Lífeyrissjóðirnir sýndu framsýni og samfélagslegan skilning. Heilbrigðisráðherra lýsti því yfir að hún hefði skipað verkefnastjórn yfir framkvæmdina. Gunnar Svavarsson, fyrrverandi alþingismaður, verður formaður stjórnarinnar. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði framkvæmdina koma á réttum tíma, nú væri lag að skapa störf. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Sjá meira