Sjálfstæðismenn ræða stjórnarslit 5. janúar 2009 04:30 Sigurður Kári Kristjánsson.
Þrír þingmenn sjálfstæðismanna ræddu stjórnarslit um helgina, í ljósi ágreinings stjórnarflokkanna um utanríkismál, sérstaklega ólíkar áherslur um Evrópuaðild. Deilt er meðal annars um hvort halda skuli alþingiskosningar samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort í aðildarviðræður skuli farið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur eðlilegt að gera hvort tveggja á sama tíma, en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokks, sagði hugmyndina einkennilega í blaðinu í gær. Dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, rifjar upp deilur um varnarsamninginn á heimasíðu sinni: „Er áhersla Samfylkingarinnar á [Evrópumálin] í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn aðeins leið til að skapa átyllu til stjórnarslita og kosninga? Er hið sama að gerast og á sínum tíma, þegar vinstri menn notuðu varnarmál til að útiloka samstarf við Sjálfstæðisflokkinn?" spyr Björn. Evrópumálin virðist geta orðið „hættuleg fyrir núverandi stjórnarsamstarf og framhald þess" segir hann á öðrum stað. Ármann Kr. Ólafsson þingmaður heldur því fram á heimasíðu sinni að þrýstingur Samfylkingar á Sjálfstæðisflokkinn sé ef til vill af annarlegum hvötum, enda sé sem stendur engin leið til að vinna að ESB-aðild nema með Sjálfstæðismönnum. Ingibjörg virðist því vinna gegn ESB-umsókn: „Hefur Ingibjörg eitthvert annað markmið en það sem fram kemur á yfirborðinu? Ef svo er þá sjá landsmenn allir að erfitt að halda saman ríkisstjórn á slíkum forsendum", segir hann. Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður sagði svo í útvarpsþættinum Sprengisandi að ekki kæmi til greina fyrir Sjálfstæðismenn að stilla Samfylkingunni upp við vegg, líkt og hún væri að gera, og segja henni að breyta afstöðu sinni ellegar yrði stjórnarsamstarfi slitið. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Fleiri fréttir Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Sjá meira