Skoðar sameiningu opinberra hlutafélaga 5. janúar 2009 06:00 Kristján L. Möller samgönguráðherra óskaði Birni Óla Haukssyni, forstjóra Keflavíkurflugvallar ohf. (til hægri) til hamingju þegar þeir ásamt Jóni Gunnarssyni, stjórnarformanni félagsins, ýttu því úr vör á föstudag. Mynd/Víkurfréttir
Erfitt efnahagsástand gæti orðið hvati að sameiningu Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf. Þetta kom fram í máli Kristjáns L. Möller samgönguráðherra þegar Keflavíkurflugvöllur ohf. tók formlega við rekstri flugvallarins á föstudag. Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur við rekstri Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Kristján sagði í samtali við Fréttablaðið að nú sé unnið að því að skipa starfshóp sem kanna eigi mögulega sameiningu þessara tveggja opinberu hlutafélaga sem heyra undir samgönguráðuneytið. Lögð sé mikil áhersla á að hraða þeirri vinnu. Keflavíkurflugvöllur ohf. mun ekki fá til eignar mannvirki sem kostuð voru af mannvirkjasjóði Atlantshafsbandalagsins (NATO). Hugmyndir voru uppi í samgönguráðuneytinu um að verðmæti þessara eigna yrðu metin og færð til félagsins til að lagfæra erfiða eiginfjárstöðu í stofnefnahagsreikningi þess. Því var harðlega mótmælt af fulltrúum utanríkisráðuneytisins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var bent á að yrðu verðmætin metin og færð félaginu til eignar myndi NATO eignast samhljóðandi kröfu á stjórnvöld. Samgönguráðherra og utanríkisráðherra skrifuðu á gamlársdag undir viljayfirlýsingu um að Keflavíkurflugvöllur ohf. fái afnot af mannvirkjum kostuðum af NATO, svo sem flugbrautum. Forstjórum Varnarmálastofnunar og Keflavíkurflugvallar ohf. hefur verið falið að semja um útfærsluna, segir Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Kristján segir að þarna sé um formbreytingu að ræða, ekki standi til að færa eignir beint inn í nýtt félag. Fram kom í minnisblaði samgönguráðuneytisins, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, að stofnefnahagsreikningur Keflavíkurflugvallar ohf. standi illa. Annað af tvennu þurfi að koma til, aukið hlutafé frá ríkinu eða að það leggi félaginu til eignir að andvirði um fimm milljarða króna. Kristján segir vinnu við stofnefnahagsreikning félagsins í gangi, en þeirri vinnu ljúki ekki fyrr en eftir uppgjör flugvallarins. Spurður hvort til standi að færa félaginu til tekna eignir greiddar af NATO, eða leigu af þeim, segir hann að svör við slíkum spurningum verði að bíða þar til stofnefnahagsreikningur verði kynntur. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira