Innlent

Frístundakort hækka ekki í sparnaðarskyni

Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, er formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur.

Vegna efnahagsþrenginga hyggst Reykjavíkurborg hætta við að hækka framlag til frístundakorta úr 25 þúsund krónum í 40 þúsund krónur líkt og var ráðgert um áramótin. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokkins, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs, segir að kortin séu einn af þeim kostnaðarliðum sem líta hafi þurft til þegar kom að hagræðingu og sparnaði í rekstri borgarinnar.

,,Við þurftum að hagræða um marga milljarða og margir liðir þurftu að sæta lækkun en þessi fær að standa í stað. Þetta er spurning um að velja og hafna," segir Kjartan. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur verður tekin til afgreiðslu í borgarstjórn á morgun.

Frístundakortið átti að innleiða í þremur áföngum. Í fyrstu með með 12 þúsund króna framlagi haustið 2007, því næst með 25 þúsund króna framlagi í fyrra og svo með 40 þúsund króna framlagi á þessu ári.

Markmiðið með frístundakortunum sem tekin voru í notkun haustið 2007 er að öll börn og unglingar í Reykjavík geti tekið þátt í frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Með kortinu er hægt greiða að hluta íþrótta- og tómstundastarfsemi á vegum félaga og samtaka sem starfa á höfuðborgarsvæðinu.

,,Það er alveg ljóst að verkefnið hefur gert mörgum fært á að taka þátt í frístundum sem ekki gátu það áður eða þurftu að velja einn hlut en geta nú leyft sér tvo," segir Kjartan.

Ákvörðunin verður endurskoðuð ef aðstæður breytast og framlagið hugsanlega hækkað. ,,Áætlun er bara áætlun," segir Kjartan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×