Sovéski fáninn að húni hjá Lilju Mósesdóttur Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar 17. júní 2009 16:22 Lilja Mósesdóttir var hrekkt af syni sínum. „
Þetta var sonur minn að hrekkja móður sína," segir alþingiskonan Lilja Mósesdóttir en í dag hefur Sovéska fánanum verið flaggað á heimi hennar í Breiðholti. Nágrannar Lilju höfðu samband við fréttastofu, ekki par hrifnir af uppátækinu. „Ég sendi hann út til að taka niður fánann," segir Lilja hlæjandi. Hún segir ástæðu þess að sonurinn brá á það ráð að hrekkja móður sína með þessum hætti vera þá að eftir að hún fór út í pólitík og settist á þing fyrir vinstri græna hefur hún verið kölluð „Komminn". Sonur Lilju, Jón Reginbaldur, er að verða átján ára og ansi stríðinn að sögn móðurinnar. „Hann á það til að reyna á þolmörkin. Hann vissi að þetta myndi líklegast fara í fjölmiðla. Í raun held ég að hann hafi líka verið að kanna hvort þetta myndi vekja athygli," segir Lilja. Lilja þvertekur fyrir að þarna sé um einhverskonar pólitíska yfirlýsingu að ræða. Aðspurð hvort hún hafi orðið reið þegar hún komst að þessu svaraði hún: „Nei alls ekki. Mér fannst þetta bara mjög fyndið og átti alveg von á einhverju svona frá honum." Fáninn er kominn niður núna að sögn Lilju. „Þetta er kannski uppreisn unglingsins að mótmæla því að tilheyra opinberri fjölskyldu," segir Lilja kampakát á þjóðhátíðardaginn.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Erlent Fleiri fréttir 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Sjá meira