Innlent

Mikill fjöldi fluttur frá Íslandi

Mikill fjöldi fólks hefur flutt frá Íslandi það sem af er ári. Metfjöldi fólks flutti frá landinu í fyrra og stefnir í svipaðan fjölda á þessu ári. 
fréttablaðið/stefán
Mikill fjöldi fólks hefur flutt frá Íslandi það sem af er ári. Metfjöldi fólks flutti frá landinu í fyrra og stefnir í svipaðan fjölda á þessu ári. fréttablaðið/stefán

Rúmlega fimmtán hundruð fleiri fluttust frá landinu en til þess á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra höfðu 2.674 fleiri flutt til landsins en frá því.

Alls hafa 2.720 manns flutt til landsins það sem af er ári, en 4.252 frá því. Flestir hinna brottfluttu eru erlendir karlmenn.

Langflestir fóru til Póllands, eða 1.247 manns. Fluttu 676 til Danmerkur, 565 til Noregs og 317 til Svíþjóðar. Færri fóru til annarra landa. Flestir þeir sem fluttu til landsins á tímabilinu komu einnig frá Póllandi, eða 667 manns.

Hafa 1.900 Íslendingar flust burt á árinu en 2.300 útlendingar. Hlutföll milli brottfluttra og aðfluttra eru svipuð hjá íslenskum og erlendum ríkisborgurum. Rúmlega 700 fleiri Íslendingar og 700 fleiri útlendingar fluttu frá landinu en til þess á þessum sex mánuðum.

Miklu fleiri karlar en konur fluttu burt á tímabilinu, ríflega 2.600 karlar fóru héðan en konurnar voru ríflega 1.500.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær hefur dregið mikið úr aðflutningi erlendra ríkisborgara til landsins og það sem af er ári hafa fleiri farið en komið. Það er í fyrsta skipti frá árinu 1992 sem það gerist. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×