Stúlkan sem lögregla handtók í dag grunaða um ölvun við akstur eftir slys á Miklubrautinni reyndist hvorki undir áhrifum áfengis né fíkniefna, heldur þvert á móti bláedrú.
Líkt og Vísir greindi frá í dag var hún sett í handjárn og færð í aftursæti lögreglubifreiðar. Að sögn vakthafandi aðalvarðstjóra er slíkt gert til að tryggja bæði öryggi grunaðra og lögreglumanna. Um vinnureglur sé að ræða. Henni var sleppt fljótlega eftir að kom í ljós að hún var ekki undir áhrifum.
Varðstjóri segir stúlkuna hafa gefið þá skýringu að hún hefði verið þreytt og annars hugar þegar hún missti stjórn á bílnum, en hún gaf svipaða skýringu á slysinu í samtali við Vísi í dag.

